- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Freyja Steingrímsdóttir skrifar
Markmið Lausnamótsins var að stofna til breiðs samtals hagaðila og leita lausna við stærstu áskorunum sem blasa við íslensku fjölmiðlaumhverfi. Verkefnið hlaut tveggja milljón króna styrk úr Hvata - styrktarsjóð á málefnasviði menningar- og viðskiptaráðherra í desember 2024.
Viðburðurinn var vettvangur öflugrar hugmyndavinnu blaðamanna, stjórnenda fjölmiðla, stjórnmálafólks, embættismanna, forsvarsfólks hagsmunasamtaka, ýmissa sérfræðinga til að mynda á sviði markaðsmála, fjölmiðla og nýsköpunar, fulltrúa atvinnulífsins og fræðasamfélagsins svo eitthvað sé nefnt. Unnið var í sjö hópum, þar sem hver hópur tók fyrir ákveðið viðfangsefni tengt sameiginlegum hagsmunum fjölmiðla, blaðamanna og almennings:
Á sjöunda tug einstaklinga tók þátt í vinnunni. Við val á þátttakendum var horft til þess að blaðamenn og stjórnendur ólíkra fjölmiðla kæmu að vinnu hvers hóps en að öðru leyti var samsetningin misjöfn eftir úrlausnarefnum hópanna. Blaðamannafélagið auglýsti eftir áhugasömum félagsmönnum til þátttöku og gætti þess að blaðamenn og rekstraraðilar frá sem flestum fjölmiðlum af öllu landinu, sem og sjálfstætt starfandi blaðamenn, ættu aðkomu að vinnunni. Boðsbréf var sent á aðra þá sem talið var að hefðu sérfræðiþekkingu sem nýttist í umræðum hvers vinnuhóps. Sem dæmi má nefna að í hópnum sem hafði framþróun og nýsköpun á fjölmiðlamarkaði að úrlausnarefni tóku blaðamenn, stjórnendur fjölmiðla sem koma að stafrænni þróun, auk sérfræðinga í málefnum fjölmiðla, rannsókna og nýsköpunar þátt í vinnunni.
Niðurstöður Lausnamótsins voru birtar í skýrslu auk svokallaðs Lausnavísis sem byggir á þessari sameiginlegu viðleitni blaðamanna, fulltrúa stjórnvalda, stjórnsýslu, sérfræðinga, atvinnulífs og almennings til að bregðast við djúpstæðum áskorunum sem steðja að frjálsri og faglegri blaðamennsku á Íslandi. Niðurstöðurnar voru einnig kynntar fyrir sérfræðingum í Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og ráðherra málaflokksins, Loga Einarssyni, og voru nýttar við gerð aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í málefnum fjölmiðla sem kynnt var í desember.
Skýrslan undirstrikar að engin ein töfralausn dugi til að bregðast við þeim veigamiklu áskorunum sem steðja að íslenskum fjölmiðlum. Landslagið er fjölbreytt og vandinn margþættur - en það þýðir jafnframt að fjölmargar leiðir eru færar til að efla sjálfstæða fjölmiðlun, styrkja fjölmiðlaflóru landsins og vernda lýðræðislega umræðu. Það krefst hins vegar víðtækrar samábyrgðar. Sú vinna getur ekki hvílt einvörðungu á herðum fjölmiðlanna sjálfra eða Blaðamannafélagi Íslands. Heldur þarfnast vinnan viljastyrks stjórnvalda, ábyrgrar stefnumótunar, samstarfs við atvinnulíf, fræðasamfélag og ekki síst vitundarvakningar hjá almenningi.