Gervigreind og blaðamennska. 4. þáttur Blaðvarpsins kominn í loftið

Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir. Þau sátu bæði í starfshópi um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, sem nýlega skilaði skýrslu undir yfirskriftinni "Gervigreind til góðs." Afar áhugavert og skemmtilegt spjall um málefni sem snertir blaðamennsku á margvíslegan hátt.

Blaðvarpið er hlaðvarp Blaðamannafélags Íslands um blaðamennsku og fjölmiðla. Umsjónarmenn eru Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Guðmundur Pálsson.