- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Leiðari Blaðamannsins 1/2025: Upplýsingaheilindi og lýðræðið
Ein stærsta ógn við lýðræðið á okkar tímum er kerfisbundin misbeiting hagsmunaafla á upplýsingum. Lýðræðisríki hafa í auknum mæli þurft að glíma við tilraunir utanaðkomandi afla til að grafa undan lýðræðinu með dreifingu skoðanamótandi falsupplýsinga. Misbeiting upplýsinga er ein hinna svokölluðu fjölþáttaógna (e. hybrid threats) sem þjóðir leggja æ meiri áherslu á að verjast og eru orðin lykilþáttur í öryggis- og varnarstefnu ríkja.
Sérfræðingar eru sammála um að öflugasta og árangursríkasta leiðin til að verjast fjölþáttaógnum á borð við undirróðursherferðir utanaðkomandi afla, er að stuðla að því að almenningur hafi aðgang að réttum upplýsingum og þær séu settar í samhengi. Þar gegna blaðamenn lykilhlutverki.
Á sama tíma hefur starf okkar blaðamanna sennilega aldrei verið jafn krefjandi. Blaðamönnum fækkar stöðugt á ritstjórnum en um leið er krafan um afköst meiri en nokkru sinni. Almenningur hefur líklega aldrei haft aðgengi að jafn miklum upplýsingum, en æ stærri hluti þeirra er óáreiðanlegur í besta falli, og hluti beinlínis settur fram til þess að villa um fyrir fólki. Í þessu samhengi má benda á að í skýrslu sem birt var í fyrra kemur fram að meirihluti allrar umferðar á internetinu sé frá gervimennum (e. bots). Gervimenni fylla internetið af upplýsingum sem til að mynda er ætlað að magna upp ákveðin sjónarmið og dreifa rangfærslum eða áróðri í þeim tilgangi að blekkja almenning.
Blaðamenn, eigendur og stjórnendur fjölmiðla og stjórnvöld standa frammi fyrir risastóru verkefni sem skiptir almenning og samfélagið gríðarmiklu máli. Við þurfum að efla blaðamennsku og fréttamiðla og auka vitund almennings á mikilvægi þeirra. Við þurfum að halda fast í siðareglur okkar og fagleg vinnubrögð - því aðeins þannig getum við lofað því að þær upplýsingar sem blaðamenn miðla séu sannar og réttar.
Eitt af því sem brýnt er að bregðast við af öllum krafti er að stuðla að því að almenningur fái betri skilning á því hvernig blaðamenn vinna, hvers vegna treysta megi blaðamönnum og hver munurinn sé á upplýsingum sem unnar eru samkvæmt vinnubrögðum blaðamennskunnar og upplýsingum sem settar eru fram á samfélagsmiðlum eða öðrum miðlum, jafnvel í þeim tilgangi að afvegaleiða umræðuna eða sá fræjum ótta eða tortryggni.
NATO skilgreinir ógnir gegn upplýsingaöryggi sem vísvitandi misnotkun upplýsingaumhverfis með það að markmiði að hafa áhrif á skoðanir og hegðun fólks og veikja samfélög. Í þeirri mynd eru blaðamenn ekki áhorfendur, heldur virkir þátttakendur í vörnum lýðræðisins.
Það leggur aukna ábyrgð á okkur blaðamenn: að halda fast í fagleg viðmið, verja siðareglur, standa saman sem stétt og láta ekki þrýsting, hraða eða ómálefnalega gagnrýni valdhafa grafa undan vinnubrögðum okkar.
Í þessu tölublaði Blaðamannsins er þessu umfjöllunarefni gerð sérstök skil í ljósi mikilvægi þess. Við fjöllum um hlutverk blaðamennsku og blaðamanna í upplýsingasamfélagi nútímans, og þá ógn sem steðjar að lýðræðislegum samfélögum, þar á meðal okkar, vegna þess veruleika sem blasir við okkur: að upplýsingar séu nú orðin ógn við lýðræðið og að helsta vörnin gegn þeim sé fagleg blaðamennska og öflugir, sjálfstæðir fréttamiðlar.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands