Grundvallarhugtökum lýðræðis hefur verið snúið á hvolf

Ein stærsta ógn við lýðræðið á okkar tímum er kerfisbundin misbeiting hagsmunaafla á upplýsingum. Ve…
Ein stærsta ógn við lýðræðið á okkar tímum er kerfisbundin misbeiting hagsmunaafla á upplýsingum. Vestræn lýðræðisríki hafa í auknum mæli þurft að glíma við tilraunir utanaðkomandi afla til að grafa undan lýðræðinu með dreifingu skoðanamótandi falsupplýsinga. Ljósmynd: Anton Brink

Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Samstarf og samvinna eru lykilþættir í baráttu fyrir upplýsingaheilindum, sem eru grundvöllur heilbrigðra lýðræðissamfélaga. Fagleg blaðamennska og frjálsir, öflugir fjölmiðlar eru grunnurinn að því að almenningur hafi aðgang að sönnum og réttum upplýsingum sem er forsenda fyrir lýðræði. Þetta kom fram á alþjóðlegri ráðstefnu um upplýsingaheilindi sem fulltrúar BÍ og fjögurra stærstu fjölmiðla landsins sóttu í Kaupmannahöfn í nóvember sl. Ráðstefnan var á vegum danska varnarmálaráðuneytisins í samvinnu við the Digital Democracy Initiative sem er á vegum framkvæmdastjórnar ESB, dönsku og norsku ríkisstjórnarinnar og IMS (International Media Support).

Stjórn BÍ bauð stjórnendum á fréttastofum fjögurra stærstu fjölmiðla landsins á ráðstefnuna í því skyni að leggja grunn að starfi sérstaks aðgerðahóps BÍ um upplýsingaheilindi. Verkefni hópsins er meðal annars að meta getu íslenskra fréttamiðla til að berjast gegn upplýsingaógnum og móta aðgerðir til að efla viðnámsþol íslenskra fjölmiðla, blaðamanna og þar af leiðandi samfélagsins alls, gegn misbeitingu upplýsinga. Í hópnum sem sóttu ráðstefnuna voru: Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri BÍ, Aðalsteinn Kjartansson, aðstoðarritstjóri Heimildarinnar, Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri fréttastofu Sýnar, Skúli Halldórsson, aðstoðarfréttastjóri mbl.is og Valgeir Örn Ragnarsson, varafréttastjóri RÚV.

Ein stærsta ógn við lýðræðið á okkar tímum er kerfisbundin misbeiting hagsmunaafla á upplýsingum. Vestræn lýðræðisríki hafa í auknum mæli þurft að glíma við tilraunir utanaðkomandi afla til að grafa undan lýðræðinu með dreifingu skoðanamótandi falsupplýsinga. Misbeiting upplýsinga er ein hinna svokölluðu fjölþáttaógna (e. hybrid threats) sem þjóðir leggja æ meiri áherslu á að verjast og er orðinn viðurkenndur mikilvægur þáttur í öryggis- og varnarstefnu ríkja. Blaðamannafélag Íslands hefur á undanförnum mánuðum tekið æ virkari þátt í samtali um þessar ógnir. Fulltrúar félagsins hafa tekið þátt í vinnu með Almannavörnum, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Fjölmiðlanefnd og fræðasamfélaginu um viðnám samfélaga gagnvart upplýsingaógnum. Þrátt fyrir þessa umræðu er enn skortur á þekkingu og verkfærum til að þróa lýðræðislegar varnir innan fjölmiðlaumhverfisins.

Megum ekki gefast upp

Peter Pomerantsev, fræðimaður við SNF Agora Institute við Johns Hopkins-háskóla, blaðamaður og höfundur bókarinnar This Is Not Propaganda: Adventures in the War Against Reality, sagði í erindi sínu á ráðstefnunni að öllum grundvallarhugtökum lýðræðisins hafi verið snúið á hvolf. Grafið hafi verið undan hugtökum á borð við tjáningarfrelsi, fjölmiðlafrelsi, fjölradda fjölmiðlar, sannleikur o.fl. Af þeim sökum reyndist erfiðara fyrir fjölmiðla að uppfylla hlutverk sitt sem mikilvæg lýðræðisstoð. Hins vegar mættu blaðamenn og fjölmiðlar ekki gefast upp á því að vinna samkvæmt þessum grundvallarhugtökum.

Hann minnti jafnframt á það að tjáningarfrelsið nái ekki síst til upplýsingaréttar almennings. „Við höfum ekki hugmynd um hvað liggur til grundvallar algrímum samfélagsmiðlanna og hvers vegna þeir lyfta ákveðnu efni og fela annað,“ benti hann á. Almenningur eigi heimtingu á því að vita hvað liggi þar til grundvallar og hvaða ritskoðun sé í gangi hjá tæknifyrirtækjum á borð við Facebook og Google.

Ulrik Vestergaard Knudsen, framkvæmdastjóri samskipta- og samfélagsmála hjá Netcompany og annar tveggja stjórnarformanna í stafrænni stefnumótunarnefnd OECD, talaði á svipuðum nótum. Hann gerði stöðuna í Bandaríkjunum að umtalsefni og sagði meðal annars að lýðræðið þar í landi væri að molna niður fyrir framan augun á okkur. Aldrei nokkuð þessu líkt hafi sést gerast í vestrænum ríkjum.

Finnar unnið markvisst að eflingu fjölmiðlalæsis í 30 ár

Leo Pekkala, aðstoðarforstjóri og yfirmaður fjölmiðlafræðslu og sviðs hljóð- og myndmiðla hjá KAVI (Finnsku kvikmyndastofnuninni), ræddi um viðnámsþol samfélaga gagnvart misbeitingu upplýsinga, og sagði frá því að Finnar hefðu fyrir þremur áratugum hafið markvissa vinnu í því að efla upplýsinga- og fjölmiðlalæsi í gegnum skólakerfið með þeim árangri að Finnland væri það land í heiminum sem mælist með mesta viðnámsþol samfélags. Rætt væri um allsherjarvarnir, í þessu samhengi, sem er sama hugtak og Svíar nota (Total Forsvar).

Mikilvægt starf fram undan

Eitt af stóru verkefnum Blaðamannafélagsins fram undan er að efla samstarf milli félagsins, blaðamanna, fjölmiðla og annarra sem hafa hagsmuni almennings og lýðræðis að leiðarljósi með tilliti til upplýsingaheilinda og fjölmiðlafrelsis. Félagið vinnur nú að undirbúningi málþings um hlutverk og mikilvægi blaðamennsku og fjölmiðla til eflingar upplýsingaheilindum, sem haldið verður á árinu. Þá verða haldnir upplýsingafundir og námskeið um ýmislegt sem tengist upplýsingaheilindum fyrir blaðamenn og stjórnendur fjölmiðla á næstu misserum auk þess sem stuðlað verður að alþjóðlegri tengslamyndun. Verkefnið hefur hlotið styrk frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Félagsfólk sem hefur áhuga á að taka þátt í þessari vinnu á vegum félagsins er hvatt til að setja sig í samband við skrifstofu.