- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélag Íslands hefur ráðið Guðmund Pálsson í starf verkefna- og þróunarstjóra. Hann mun leiða ný verkefni í samræmi við stefnu stjórnar, auk þess að vinna að fræðslu og nýliðun í félaginu. Ráðningin er liður í því að efla starfsemi félagsins enn frekar og styðja við framtíðarsýn þess um öflugt fag- og stéttarfélag blaðamanna og sterkara umhverfi fyrir blaðamennsku á Íslandi.
Guðmundur hefur unnið við fjölmiðla í tuttugu ár. Fyrst sem blaðamaður hjá DV og svo hjá RÚV þar sem hann starfaði á öllum miðlum - lengst sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi. Áður vann hann m.a. við upplýsingamiðlun fyrir Hafrannsóknastofnun og Íslenska erfðagreiningu. Guðmundur er með BA-próf í íslensku frá HÍ og meistarapróf í verkefnastjórnun frá HR. Hann er einn stofnenda Baggalúts sem flestir tengja við samnefnda hljómsveit og tónleikahald, en hélt einnig lengi úti vinsælli heimasíðu, hefur gefið út bækur, gert útvarps- og sjónvarpsþætti og ýmislegt fleira.
Við bjóðum Guðmund velkominn til starfa.