- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Brynjólfur Þór Guðmundsson skrifar
Fjölmiðlaráðstefnan International Journalism Festival verður haldin í 20. sinn í vor í miðaldaborginni Perugia á Ítalíu. Þar úir og grúir af hvers kyns fjölmiðlafólki alls staðar að úr heiminum eina langa helgi í apríl ár hvert. Enda er nóg í boði, um 200 málstofur voru haldnar á þremur dögum auk hliðaratburða á síðustu ráðstefnu.
Við Markús Þórhallsson fórum á ráðstefnuna í fyrravor. Við mælum heilshugar með því að fólk sem hefur áhuga á endurmenntun og umræðum um fjölmiðla og starfsumhverfi þeirra skelli sér.
Ráðstefnan er tvískipt. Miðvikudagur og sunnudagur eru á ítölsku en málstofurnar sem haldnar eru á fimmtudegi, föstudegi og laugardegi eru á ensku. Ráðstefnan er haldin í gamla borgarhlutanum í skemmtilegri og fallegri borg í afskaplega glæsilegum og virðulegum salarkynnum. Stutt er á milli flestra fundarstaða en þó er einn þeirra, háskólinn, aðeins út úr. Aldrei er þó meira en nokkurra mínútna gangur á milli.
Aðalmálið er þó auðvitað efnislega umræðan sem þarna fer fram. Eins og ætla má af 200 málstofum og um það bil 500 fyrirlesurum er af nægu að taka. Það er óumflýjanlegt að fólk missi af einhverju. Það þarf þó ekki að koma að sök. Upptökur af öllum málstofum má nálgast á vef hátíðarinnar journalismfestival.com.
Ráðstefnan í fyrra tók að sumu leyti mið af því að Donald Trump var nýtekinn aftur við völdum í Bandaríkjunum og að forsvarsmenn sumra stærstu tæknifyrirtækja heims höfðu stillt sér upp við hlið hans. Margir fyrirlesarar lýstu áhyggjum af stjórnlyndi Trumps þegar kæmi að fjölmiðlum og andúð hans á gagnrýnum fréttaflutningi og ekki síður af valdi tæknirisa á upplýsingamiðlun. Þarna mátti heyra allt frá varnaðarorðum upp í allt að því dómsdagsspár.
Við fengum líka fróðleg erindi um leiðir sem hinir ýmsu fjölmiðlar hafa farið til að endurheimta lesendur/áhorfendur/áheyrendur; heilræði og reynslusögur um hvernig starfrækja ætti eins manns fjölmiðil; innsýn í hvernig er að reka sjálfstæða ísraelska og palestínska fjölmiðla á tímum stríðsins á Gaza og margt fleira. Þar á meðal voru málstofur um gildi og siðferði í fjölmiðlun, fjármögnun, öryggi fjölmiðlafólks, tjáningarfrelsi, sjálfsritskoðun, samstarf og leiðir til að rannsaka og segja fréttir.
Jú – og svo var skemmtileg málstofa í lokin um mistökin sem fólk hefur gert í starfi. Ekki í fréttaflutningi heldur í skipulagningu og uppbyggingu miðla og verkefna.
Ókeypis er inn á allar málstofur. Stundum er aðsóknin meiri en plássið og því gott að mæta tímanlega. Fólk hefur lent í því að vera vísað frá og á einni málstofunni í vor var enn verið að hleypa fólki inn í hollum þegar stundarfjórðungur var liðinn af henni.
En það er reyndar oftast stutt í næsta fundarsal ef fólk kemst ekki að á einum stað.
Ekkert þátttökugjald er innheimt af ráðstefnugestum. Hún er kostuð með framlögum frá fjársterkum aðilum og ferðamálayfirvöldum.
Það þarf þó að koma sér á staðinn og finna sér gistingu. Ráðlegt er að bóka hótel með góðum fyrirvara því það getur orðið erfitt að finna laust herbergi þegar nær dregur. Við bókuðum snemma árs og enduðum samt á Airbnb.
Hægt er að fljúga til Rómar (eða annarra ítalskra borga) og taka rútu af flugvellinum til Perugia. Fólk getur líka valið að dvelja eina eða fleiri nætur í Róm og tekið lestina þaðan.
Fullgildir félagar í Blaðamannafélagi Íslands geta sótt um endurgreiðslu vegna ferða- og gistikostnaðar í endurmenntunarsjóð félagsins og eftir atvikum í fræðslusjóð RÚV.
International Journalism Festival
15. – 18. apríl 2026
Perugia á Ítalíu