Kortlagning gegn upplýsingaóreiðu

Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálasálfræði við Háskóla Íslands, bendir á að upplýsingaóreiða …
Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálasálfræði við Háskóla Íslands, bendir á að upplýsingaóreiða snúist ekki endilega um að fá fólk til að trúa tilteknum rangfærslum heldur um að skapa slíka óvissu um hvað sé satt að fólk hætti að treysta upplýsingum yfirleitt. Ljósmynd: Anton Brink

Erla Hlynsdóttir skrifar

Upplýsingaóreiða, rangfærslur og skipulögð dreifing upplýsinga í pólitískum tilgangi hafa á undanförnum árum orðið vaxandi ógn við lýðræðislega umræðu á Norðurlöndum. Til að bregðast við þeirri þróun er nú hafið nýtt norrænt rannsóknarverkefni á Íslandi, NORDREN – The Nordic Disinformation Resilience Network. Verkefnið, sem er styrkt af NordForsk, miðar að því að kortleggja þá aðila sem vinna gegn þessum ógnum, greina starfshætti þeirra og meta hvaða aðferðir skila raunverulegum árangri. Samráðsfundur verkefnisins fór fram í september og markaði upphaf skipulegrar gagnaöflunar hér á landi.

Stöðumat á baráttunni

Að verkefninu standa fræðimenn frá öllum Norðurlöndunum. Á Íslandi er það unnið af Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við Háskóla Íslands, og Eiríki Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Hulda segir markmiðið ekki vera að fella dóma eða benda á sökudólga, heldur að taka stöðuna á því hvernig baráttan gegn upplýsingaóreiðu fer fram, hverjir koma þar að og hvernig samstarf, eða skortur á því, hefur áhrif á getu samfélaga til að bregðast við. Hún bendir jafnframt á að þótt rannsóknir á upplýsingaóreiðu hafi verið unnar áður, hafi ekki verið gerð sambærileg samantekt á þeim aðilum sem vinna gegn slíkum ógnum á Norðurlöndum og hvernig sú vinna er skipulögð.

Sérhæfður starfsvettvangur í mótun

„Markmiðið okkar er að kortleggja þá aðila sem vinna gegn upplýsingaóreiðu og samsæriskenningum, hvaða aðferðir þeir nota og hvað þeir telja vera helstu ógnina,“ segir Hulda. Þar er horft til ólíkra aðila, þar á meðal stjórnvalda, fjölmiðla, frjálsra félagasamtaka og einkaaðila. Jafnframt er skoðað hvort það sem rannsóknir benda til að virki samræmist því sem gert er í raun. „Það getur verið algjört misræmi á milli þess sem fræðin segja og þess sem fólk er að gera.“

Eitt af því sem vakti sérstaka athygli Huldu í upphafi verkefnisins er að vinna gegn upplýsingaóreiðu hefur víða þróast í sérhæfðan starfsvettvang. „Það er fólk farið að hafa atvinnu af því að leiðrétta eða kenna öðrum hvernig eigi að takast á við upplýsingaóreiðu,“ segir hún. Slík þróun kalli á gagnrýna skoðun á hlutverki þeirra aðila, stöðu þeirra í samfélaginu og þeim hagsmunum sem kunna að vera í spilinu.

Veikburða innviðir á Íslandi

Íslenskt samhengi sker sig að mati rannsakenda úr að því leyti að innviðirnir eru veikburða og treysta að miklu leyti á samstarf við nágrannalöndin. „Það er alveg greinilegt að íslenskir aðilar reiða sig mjög mikið á systurstofnanir annars staðar á Norðurlöndunum og fljóta oft með,“ segir Hulda. Hún nefnir sérstaklega Noreg sem fyrirmynd þegar kemur að staðreyndatékki, þar sem fjölmiðlar hafa komið sér saman um sameiginlegt fyrirkomulag við sannprófun upplýsinga. „Enginn gerir þetta jafn vel og Norðmenn.“

Þessi staða skapar áskoranir fyrir íslenska fjölmiðla til að bregðast við upplýsingaóreiðu. Hulda bendir á að þótt oft sé kallað eftir auknu staðreyndatékki sé slík vinna flókin í framkvæmd, ekki síst í pólitískri umræðu. Hún varar jafnframt við því að allt sem er umdeilt sé flokkað sem upplýsingaóreiða. „Það er ekki allt upplýsingaóreiða. Stundum er þetta einfaldlega skoðanaágreiningur,“ segir hún. Kúnstin felist í að greina þar á milli.

Dregur úr þátttöku í umræðunni

Kjarni vandans liggur þó dýpra. Hulda bendir á að upplýsingaóreiða snúist ekki endilega um að fá fólk til að trúa tilteknum rangfærslum heldur um að skapa slíka óvissu um hvað sé satt að fólk hætti að treysta upplýsingum yfirleitt. Afleiðingin geti orðið vantraust, sinnuleysi og brotthvarf fólks úr lýðræðislegri umræðu.

Gagnaöflun verkefnisins stendur nú yfir með rýnihópum á öllum Norðurlöndunum, en næsta skref er að taka einstaklingsviðtöl við aðila sem starfa á þessu sviði. Að því loknu er stefnt að því að vinna samantekt niðurstaðna og kynna þær fyrir þátttakendum verkefnisins, meðal annars á sameiginlegum fundi. Samhliða verður unnið að skýrslu sem ætluð er þeim sem starfa við baráttuna gegn upplýsingaóreiðu, auk fræðilegra greina. Þá er liður í verkefninu að halda sumarnámskeið fyrir meistara- og doktorsnema sem stunda rannsóknir á þessu og tengdum sviðum. Hulda segir rannsóknarverkefnið hugsað sem fyrsta skref, þar sem markmiðið sé að leggja grunn að frekari rannsóknum og auknu samstarfi á þessu sviði síðar meir.