- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Freyja Steingrímsdóttir skrifar
Öflug hagsmunagæsla í þágu fjölmiðla og blaðamennsku er einn af lykilþáttum í starfsemi Blaðamannafélags Íslands. Aukin áhersla hefur verið lögð á þennan þátt starfseminnar undanfarin ár þar sem fjölmiðlar og blaðamennska eiga undir högg að sækja hér á landi sem víða annars staðar. Rekstrarskilyrði fjölmiðla hafa versnað verulega á undanförnum árum, ekki síst vegna harðnandi samkeppni við alþjóðlega tæknirisa og blaðamenn sæta sífellt óvægnara aðkasti bæði í opinberri umræðu og frá valdhöfum. Orðræðan einkennist í vaxandi mæli af vantrausti og fjandsamlegum viðhorfum gagnvart blaðamönnum og störfum þeirra. Þetta er þróun sem endurspeglar alþjóðlega tilhneigingu og er eitt af þeim viðfangsefnum sem félagið beinir kröftum sínum að því að vinna gegn.
Fyrsta aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla, sem Logi Einarsson menningarmálaráðherra kynnti í lok desember, er mikilvæg viðurkenning á hlutverki fjölmiðla í lýðræðissamfélagi og er ætlað að skapa grundvöll fyrir viðspyrnu einkarekinna miðla í gjörbreyttu rekstrarumhverfi. Margar af aðgerðunum samræmast þeim kröfum og lausnum sem Blaðamannafélag Íslands hefur lagt til á reglulegum fundum sínum með stjórnvöldum.
„Sterkir og faglegir fréttamiðlar veita stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald, greina flókin mál og setja þau í samhengi við sögu og samtíma. Þeir stuðla að varðveislu íslenskrar tungu og menningar og eru ein helsta forsenda þess að almenningur hafi aðgang að traustum og sannreyndum upplýsingum. Lýðræðið þrífst ekki án stöndugra, sjálfstæðra og gagnrýninna fjölmiðla. Þess vegna er það skylda stjórnvalda að tryggja að þeir þrífist.“ – Úr aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla, desember 2025.
Sú aðgerð sem hefur hlotið mesta athygli er að 12% af auglýsingatekjum RÚV verði veitt beint inn í sjóð til styrktar einkareknum miðlum, sem gæti numið um 300 milljónum á ári. Þá verður ákveðið þak sett á auglýsingatekjur til að tempra auglýsingasölu og allar tekjur umfram það renna aukalega í sama sjóð. Lagafrumvarp þess efnis verður lagt fram á vorþingi 2026.
Blaðamannafélagið hefur lagt áherslu á nauðsyn þess að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði í málflutningi sínum en jafnframt beint því að stjórnvöldum að komið sé til móts við tekjutapið sem af því hlýst. Það hyggjast stjórnvöld gera með því að aflétta láni vegna eldri lífeyrisskuldbindinga RÚV. Með þessari aðgerð er auglýsingastarfsemi RÚV takmörkuð þannig að auglýsingatekjur renna beint til einkarekinna miðla í stað þess að eiga á hættu að stór hluti þeirra renni til erlendra tæknirisa. Þó án þess að veikja ríkisfjölmiðilinn.
Þá verður RÚV gert að efla samstarf við einkarekna miðla, til að mynda með greiðara aðgengi að efni úr safni RÚV, nýtingu tæknibúnaðar og auknu samstarfi við staðbundna fréttamiðla. Þetta á sér til að mynda fyrirmynd í Noregi og hefur reynst vel þar.
„Fjölmiðill er ekki eins og hvert annað fyrirtæki. Frumskylda blaðamanns er ekki að tryggja hluthöfum arð, heldur er trúnaður hans við lesendur.“ – Úr aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla
Beinn stuðningur við einkarekna fjölmiðla verður aukinn og fyrirkomulagið framlengt til fimm ára til að tryggja fyrirsjáanleika. Útgreiðsla stuðnings verður fyrr á árinu og skerpt verður á skilyrðum um að fjölmiðlar miðli fréttum og fréttatengdu efni úr íslensku samfélagi. Þá verður stuðningur aukinn enn frekar við þá fjölmiðla sem uppfylla sértæk skilyrði um almenna fréttaþjónustu í þágu almennings um allt land.
Blaðamannafélagið hefur lagt áherslu á nauðsyn þess að auka það fé sem veitt er til einkarekinna fjölmiðla til samræmis við hlutfallið á Norðurlöndunum, skerpa á skilyrðum svo að stuðningurinn nýtist sem best og að fyrirsjáanleiki sé tryggður til lengri tíma. Það gefur því auga leið að félagið fagni auknum stuðningi, þótt hlutfallið verði áfram lægra á Íslandi en í sumum nágrannaríkjum okkar, og telur BÍ það mikilvægt skref að framlengja fyrirkomulagið til fimm ára. Auðvitað væri það óskandi að ekki væri þörf á beinum stuðningi stjórnvalda til fjölmiðla, en efnahagslegar forsendur verða að vera fyrir hendi til að fjölmiðlar geti sinnt lýðræðishlutverki sínu. Hin Norðurlöndin, sem skipa sér efst á lista yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum, hafa lengi stutt við einkarekna fjölmiðla með beinum styrkjum sem þykja hafa reynst betur en annars konar ívilnanir. Þetta kemur meðal annars fram í nýútgefinni skýrslu danska menningarmálaráðuneytisins um framtíð fjölmiðlastuðnings þar í landi.
Stjórnvöld boða einnig aukinn stuðning við það sem þau kalla „almannaþjónustu fjölmiðla.“ Allir ritstýrðir fréttamiðlar landsins sinna mikilvægri almannaþjónustu. En með þessari aðgerð virðist eiga að styðja sérstaklega við stærri miðla sem uppfylla sértæk skilyrði um viðbragðsgetu, það er fjölda á ritstjórn, sólarhringsmönnun og landsdekkun svo eitthvað sé nefnt. Fyrir árið 2026 verða veittar 100 milljónir króna aukalega til miðla sem uppfylla þessar kröfur.
Ráðgert er að frumvörp tengd aðgerðaáætluninni verði lögð fram á vorþingi en mikilvægt er að vandað sé til verka og að skilyrðin verði með þeim hætti að þessi aukni stuðningur skili sér í að efla ritstjórnir og blaðamennsku í landinu.
Einnig verður komið á fót nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla sem hefur það að markmiði að styðja við nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða hjá fréttamiðlum. Rannís kemur til með að annast umsýslu og úthlutanir úr sjóðnum sem hefjast strax á þessu ári.
Um helmingur alls auglýsingafjár á Íslandi fer til stórra alþjóðlegra tæknifyrirtækja svo sem Meta og Google. BÍ leggur þunga áherslu á að ráðist verði í skattlagningu þessara fyrirtækja sem fyrst. Fordæmin eru til staðar til að mynda í Austurríki þar sem yfirvöld settu 5% skatt á auglýsingatekjur tæknifyrirtækja í þágu blaðamennsku. Slík skattlagning dregur úr samkeppnisforskoti tæknirisanna á auglýsingamarkaði og býr til tekjur sem nýta má í frekari stuðning við fjölmiðla í landinu. Til að setja þetta í samhengi þá nam auglýsingasala til erlendra miðla árið 2023 um 13 milljörðum króna. 5% af því gera 650 milljónir, sem er hærri upphæð en greidd er í styrki til einkarekinna fjölmiðla árlega.
Blaðamannafélagið hefur lagt áherslu á vitundarvakningu meðal almennings og hagaðila um mikilvægi blaðamennsku á Íslandi. Félagið réðist í stóra auglýsingaherferð árið 2024 og hélt í kjölfarið Lausnamót um framtíð fjölmiðla og blaðamennsku á síðasta ári til að fjölga talsmönnum um mikilvægi blaðamennsku. Nú leggjast stjórnvöld á árar með okkur með því að ráðast í vitundarvakningu sem miðar að því að auka umræðu um og minna á mikilvægi blaðamennsku í íslensku samfélagi og hvetja til að almenningur, stofnanir og fyrirtæki styðji faglega, innlenda fjölmiðla í verki með kaupum á áskriftum og auglýsingum. Blaðamannafélagið mun koma að undirbúningi vitundarvakningarinnar.
Þá er einnig áætlað að ráðast í átak í fræðslu um miðlalæsi til að auka stafræna færni, samfélagsvitund og gagnrýna hugsun. Blaðamannafélagið leggur áherslu á að slík fræðsla feli einnig í sér fræðslu um mikilvægi ritstýrðra fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
Loks má geta þess að í áætlun stjórnvalda er sérstök aðgerð sem miðar að því að vinna að umbótum sem geta styrkt fjölmiðlafrelsi á Íslandi í samræmi við niðurstöður Lausnamóts BÍ.
„Innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, með aðkomu annarra ráðuneyta, er áfram unnið að: Umbótum sem geta styrkt fjölmiðlafrelsi á Íslandi, í samræmi við niðurstöður lausnamóts Blaðamannafélags Íslands.“ – Úr aðgerðaáætlun stjórnvalda
Aðgerðaáætlun stjórnvalda er metnaðarfull og verður vonandi mikilvægur hluti af viðspyrnu íslenskra fréttamiðla. Mikilvægt er að halda vel á spöðunum, veita stjórnvöldum aðhald og tryggja að loforð og tímasetningar standist. En þótt Blaðamannafélagið fagni langflestum aðgerðum og ekki síst því viðmóti sem aðgerðaáætlunin felur í sér, þá voru aðgerðir sem félagið lagði áherslu á sem komust ekki á blað og félagið mun leggja áherslu á að verði bætt við þegar áætlunin verður endurskoðuð að tveimur árum liðnum.
Sérstaklega söknum við aðgerðar sem felur í sér stuðning við sjálfstætt starfandi blaðamenn sem vinna að samfélagslega mikilvægri blaðamennsku. Félagið hefur þegar stofnað slíkan samfélagssjóð, Glætuna, og hefur lagt áherslu á að stjórnvöld komi að fjármögnun hans. En þótt viðbrögð fyrrverandi og núverandi menningarmálaráðherra hafi verið jákvæð hefur fjármagn enn ekki skilað sér inn í sjóðinn. BÍ mun halda áfram að berjast fyrir þessu mikilvæga umbótamáli fyrir blaðamennsku í landinu.
| Aðgerðir í áætlun stjórnvalda | Tillaga af Lausnamóti | |
|---|---|---|
| 1 | Auglýsingafé RÚV veitt til annarra fjölmiðla | Já |
| 2 | Innleiðing á stafrænu auglýsingakerfi hjá RÚV | Já |
| 3 | Aflétting láns vegna eldri lífeyrisskuldbindinga RÚV | Nei |
| 4 | Felldar verði út kvaðir um fjölda rása | Nei |
| 5 | Þarfagreining á húsnæðismálum RÚV | Nei |
| 6 | Almennur stuðningur hækkar | Já |
| 7 | Aukinn stuðningur við almannaþjónustu fjölmiðla | Nei |
| 8 | Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla | Já |
| 9 | Talsetningar- og textunarsjóður | Já |
| 10 | Skattlagning alþjóðlegra tæknifyrirtækja | Já |
| 11 | Aðgerðir til að stöðva hugverkaþjófnað á fjölmiðlaefni í sjónvarpi | Nei |
| 12 | Endurgjald fyrir afnot á efni fjölmiðla | Já |
| 13 | Menningarframlag streymisveitna | Nei |
| 14 | Stjórnarráðið innleiði stefnu um áskrifta- og auglýsingakaup af innlendum fjölmiðlum | Já |
| 15 | Efling menntunar og fagþekkingar í blaðamennsku | Já |
| 16 | Átak í fræðslu um miðlalæsi | Já |
| 17 | Vitundarvakning um mikilvægi ritstýrðra fjölmiðla | Já |
| 18 | Umbætur í þágu fjölmiðlafrelsis í samræmi við niðurstöður Lausnamóts BÍ | Já |
| 19 | Einföldun stjórnsýslu og eftirlits á sviði fjölmiðlunar | Já |