Myndir ársins 2025: Golli hlýtur bæði verðlaun

Golli tekur á móti verðlaunum fyrir Mynd ársins. Mynd: Eyþór Árnason
Golli tekur á móti verðlaunum fyrir Mynd ársins. Mynd: Eyþór Árnason

Í dag, 11. apríl, klukkan 15 voru afhent verðlaun í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir myndir ársins 2025. Að þessu sinni hlaut Kjartan Þorbjörnsson (Golli) verðlaun bæði fyrir fréttamynd ársins og mynd ársins.

Dómnefndarstörf fóru fram snemma í febrúar en í ár skipuðu dómnefndina: Árni Torfason, Arnaldur Halldórsson, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir og Mads Nissen, þrefaldur
World Press Photo vinningshafi sem var formaður dómnefndar. 

Á ljósmyndasýningunni Myndir ársins 2025 eru 104 myndir frá sextán blaðaljósmyndurum sem valdar voru úr rúmlega 600 hundruð innsendum myndum. Átján ljósmyndarar sendu inn myndir til dómnefndar og mátti hver eingöngu senda inn 66 myndir. Á sýningunni eru myndirnar í sex flokkum: fréttamyndir, daglegt líf, íþróttamyndir, portrettmyndir,
umhverfismyndir, og myndaraðir. Í ár veitti dómnefndin verðlaun fyrir bestu fréttamynd ársins og fyrir mynd ársins 2025, en að þessu sinni varð myndröð fyrir valinu í þeim flokki. Logi Einarsson, Menningar, nýsköpunar og háskólaráðherra, opnaði sýninguna.

Blaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Sýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan 1979 og er ein fjölsóttasta ljósmyndasýningin landsins ár hvert. Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands í ár skipa Kjartan Þorbjörnsson, Golli, (formaður), Anton Brink, Eyþór Árnason og Ragnhildur Aðalsteinsdóttir. Samhliða sýningunni kemur út bók með öllum myndum sýningarinnar sem er til sölu í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur.

Sýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til 17. maí 2026.

FRÉTTAMYND ÁRSINS – ljósmyndari: Kjartan Þorbjörnsson, Golli

„Margir þurfa tíma til að átta sig á sögunni, þurfa baksýnisspegil til að átta sig á því sögulega eða umbreytandi andartaki sem átti sér stað fyrir framan þá. En framúrskarandi ljósmyndari er öðruvísi. Hann sér andartakið fyrir. Berst til að koma sér í rétta stöðu. Og bíður þolinmóður þangað til stundin rennur upp og rétt er að smella af. Þessi sögulega stund, sem hlaut verðlaunin Fréttamynd ársins 2025, á sér langan aðdraganda. Myndin sýnir fyrstu stundina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valdastöðurnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Guðrún Karls Helgudóttir biskup sitja fyrir á sjálfsmynd sem virðist tekin í hita augnabliksins. Við þekkjum öll sjálfuna, hversdagslega athöfn sem endurtekur sig endalaust – óformleg, næstum kjánaleg – en þessar fjórar konur virðast engu að síður vera meðvitaðar um það afar táknræna og sögulega andartak sem þær eru hluti af. Að bak við brosið séu þær þarna sem fulltrúar harðrar aldalangrar baráttu fyrir jafnrétti kvenna sem er hvergi lokið.“

 

MYND ÁRSINS – ljósmyndari: Kjartan Þorbjörnsson, Golli
„Sigurvegari í flokknum mynd ársins er einstakt rannsóknarverk sem minnir okkur á að á bak
við skrifræðiskerfi samfélagsins leynast alltaf raunveruleg mannslíf. Í sífellt flóknari heimi,
þar sem fréttirnar buna áfram og stjórnmálin snúast hraðar og hraðar, eru sinnuleysi og
kaldhæðni alltaf í nánd að leita færis. Það getur virst ómögulegt að skilja heiminn. Áreitið er
stöðugt. Það er svo auðvelt að gefast upp.
En saga Oscars gerir það ómögulegt að vera sama. Alþjóðastjórnmál birtast hér í lífi einnar
ungrar manneskju. Við erum nærri þegar örlög hans eru mótuð og ráðin. Stefna í málefnum
útlendinga, sem ætlað er að vernda Ísland, mætir skyndilega veruleikanum – þar sem
samfélag tekur höndum saman í verndarskyni. Til að vernda Oscar.
Í sundurleitum heimi er dómnefndin ekki að verðlauna eina glæsilega mynd, heldur
rannsóknarmyndaröð. Samkenndin og nærveran í myndunum hittir okkur í hjartastað og
dregur okkur inn í ferðalag sem vekur opinskátt spurningar um grunngildi Íslands og
framtíðina sem við deilum saman.“