- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Kjartan Þorbjörnsson (Golli), formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, skrifar
Við opnun sýningarinnar Myndir ársins 2024 á Ljósmyndasafni Reykjavíkur gagnrýndi ég lögregluyfirvöld á Reykjanesi harðlega. Ástæðan var sú að af öllum þeim hundruðum mynda sem blaðaljósmyndarar Íslands höfðu valið sem sín bestu verk og sent inn til keppni var ekki ein stök mynd af stærsta fréttaviðburði ársins, rýmingu Grindavíkur.
Lögreglustjóri svæðisins hafði tekið upp á því að halda öllum blaðamönnum frá bænum þá daga sem hundruðum íbúa var leyft að fara um svæðið til að rýma heimili sín. Rök lögreglustjórans voru þau að búið væri að mynda nóg, það þyrfti að verja íbúana gegn fjölmiðlum. Þessi fáránlega ákvörðun lögreglustjórans hafði ekkert með öryggi fréttamanna að gera enda var fjöldi fólks eftirlitslaust í bænum klukkutímum saman í nokkra daga samfleytt á sama tíma. Mótmælum fréttamanna var engu sinnt ef undan er skilin stutt skipulögð hópferð þar sem fréttamönnum var smalað í kálf sem keyrði undir stjórn sérsveitarmanns inn í Grindavík en þó eingöngu á svæði þar sem enginn var fyrir og ekkert líf var að sjá. Þannig rann þessi risa atburður í sögu landsins algerlega fram hjá annars vakandi augum íslenskra blaðaljósmyndara. Þessar myndir eru ekki til og verða aldrei til.
Nú eru rúm tvö ár liðin frá því að Grindavík var fyrst rýmd í stóru skjálftahrinunni þegar vísindamenn tilkynntu myndun stórs kvikuhólfs undir bænum. Atburðarásin sem á eftir hefur fylgt er uppfull af stórum atburðum, miklum tilfinningum, erfiðri ákvörðunartöku en allt virðist vera gert til að bjarga því sem bjargað verður og reyna að koma lífinu í eins eðlilegt horf og hægt er. Nú þegar mesta rykið hefur sest, óvissa hefur minnkað og vísindamenn og bæjarbúar hafa áttað sig á umbrotamynstri sem enn sér þó ekki fyrir endann á væri fróðlegt að heyra í Grindvíkingum sjálfum; finnst þeim kannski að til séu of margar myndir af því sem gengið hefur á síðastliðin tvö ár? Getur verið að þegar litið verður til baka sakni þeir þess að þessi stærsti atburður í sögu bæjarins hafi ekki verið skrásettur í myndum?
Það þurfa ekki að líða mörg ár til að fenni yfir minningar, þess vegna þarf myndir. Þó lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi talið sér trú um að hann væri að vernda bæjarbúa með að halda blaðaljósmyndurum frá Grindavík fullyrði ég að með hverju ári sem líður frá þessum atburði muni fólk átta sig á því hversu arfavitlaus ákvörðun þetta var, þessar myndir átti alltaf að taka. Að halda blaðaljósmyndurum frá vettvangi vegna þess að fólk sé að upplifa erfiðar aðstæður má aldrei vera ákvörðunarvald sem nokkurt yfirvald á að hafa í frjálsu samfélagi. Það þarf að skrásetja söguna í myndum, líka erfiðu stundirnar. Tíminn leiðir svo í ljós hversu verðmætt í sögunni og samfélaginu þær myndir verða en þær þurfa að vera til.
Þó nú séu eingöngu tvö ár frá því eldsprunga opnaðist innan varnargarða Grindavíkur og hraunið gleypti efstu húsin í bænum, sem var hræðilegur atburður á alla vegu, er Grindavík sjálf farin að nýta sér myndefni af brennandi einbýlishúsum til að laða ferðamenn til bæjarins. Þannig hefur Grindavíkurbær sjálfur gert hörmungar íbúa sinna að söluvöru fyrir ferðamenn á visitgrindavik.is. Tilfinningar fólks gagnvart slíkum áföllum breytast jú þegar frá líður, einnig tilfinningar gagnvart erfiðu myndefni. Þess vegna þarf alltaf að mynda, líka hörmungar, fréttnæmt myndefni af einstökum atburðum verður aldrei búið til eftir á. Við getum ekki leyft yfirvaldi að halda fyrir augu okkar.