Norrænir blaðamenn lýsa þungum áhyggjum af stöðu blaðamennsku á Íslandi

NJF samanstendur af blaðamannafélögum allra Norðurlandanna
NJF samanstendur af blaðamannafélögum allra Norðurlandanna

Norræna blaðamannasambandið (NJF) lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu blaðamennsku og fréttamiðla á Íslandi.

Norðurlöndin hafa lengi verið í fremstu röð þegar kemur að fjölmiðlafrelsi. Sú staða byggir á sterkri vernd tjáningarfrelsis og skilningi á grundvallarhlutverki sjálfstæðra og fjölbreyttra, ritstýrðra fjölmiðla í lýðræðissamfélögum. Ísland var um áratugaskeið meðal þeirra ríkja sem stóðu fremst á þessu sviði. Nú eru hins vegar vaxandi áhyggjur af því hvort nægilega góðar forsendur séu fyrir sjálfstæðri blaðamennsku til framtíðar hér á landi.

Rekstrarumhverfi fjölmiðla hefur farið versnandi á undanförnum árum þar sem auglýsingatekjur hafa runnið í auknum mæli til alþjóðlegra tæknirisa og ekki hefur tekist að bæta tekjutapið með sölu áskrifta. Smæð íslenska fjölmiðlamarkaðarins gerir hann sérstaklega viðkvæman fyrir efnahagslegum og tæknilegum breytingum. Nýleg þróun undirstrikar þessa stöðu. Eftir ákvörðun Sýnar fyrr í þessari viku um að leggja niður sjónvarpsfréttir er nú aðeins einn fjölmiðill á Íslandi sem sendir út sjónvarpsfréttir, Ríkisútvarpið, og aðeins eitt prentað dagblað er eftir.

Annars staðar á Norðurlöndunum eru áskriftir mikilvægur þáttur í því að skapa fjárhagslegan grundvöll fyrir faglega blaðamennsku. Á Íslandi þarf að styrkja þennan grunn en til þess þarf stuðning stjórnvalda, fjölmiðlafyrirtækja og almennings.

Fjölmiðlafrelsi er ekki sjálfgefið, jafnvel ekki á Norðurlöndum. Fréttastofur þurfa að hafa bolmagn til að rannsaka mál, skýra frá, veita valdhöfum aðhald og miðla áreiðanlegum upplýsingum til almennings. Blaðamennska er auk þess lykilþáttur í þegar kemur að lýðræðislegum viðnámsþrótti samfélaga. Fábreyttara og veikara fjölmiðlaumhverfi berskjaldar samfélög á tímum aukinnar upplýsingaóreiðu og uppgangi gervigreindar.

NJF stendur með með blaðamönnum á Íslandi og Blaðamannafélagi Íslands í baráttu þeirra fyrir sterkara fjölmiðlaumhverfi og blaðamennsku á Íslandi.

Við hvetjum íslensk stjórnvöld, stjórnmálafólk, eigendur fjölmiðla, atvinnulífið og aðra hagaðila til að grípa til aðgerða til að standa vörð um sjálfstæða blaðamennsku.

Það er sameiginleg ábyrgð okkar að tryggja að blaðamennska geti áfram gegnt lýðræðislegu hlutverki sínu.

___

EN

The Nordic Union of Journalists (NJF) expresses deep concern over the weakening of news media and journalism in Iceland.

The Nordic countries have long been global leaders in press freedom, built on strong protections for freedom of expression and an understanding of the vital role that independent and diverse editorial media play in democratic societies. Iceland was for decades among the countries at the forefront. Today, there is growing concern about the conditions for sustaining independent journalism there.

Newsrooms have faced financial pressure for years, while advertising revenue has shifted towards global tech platforms. Iceland's small media market is particularly vulnerable to economic and technological change.

Recent developments illustrate this. Following the closure of Sýn's television newsroom this week, which had operated for almost four decades, Iceland now has only one broadcaster producing television news: the public service broadcaster RÚV. Only one printed daily newspaper remains.

Press freedom cannot be taken for granted, even in the Nordic countries. Newsrooms need the resources to investigate, report, hold power to account and provide the public with reliable information. Journalism is also vital to democratic resilience: at a time of widespread disinformation and rapid advances in artificial intelligence, a decline in journalistic capacity leaves societies more exposed.

NJF stands in solidarity with journalists in Iceland and with the Icelandic Union of Journalists in its efforts to secure sustainable conditions for journalism. We urge the Icelandic government, political leaders, media owners, businesses and other stakeholders to take action to safeguard independent journalism. Elsewhere in the Nordic region, subscription revenue has become an important foundation for quality journalism, and building that same foundation in Iceland will require support from policymakers, media companies and audiences alike.

Ensuring that journalism can fulfil its democratic role is a shared responsibility.