- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Aðalsteinn Kjartansson, aðstoðarritstjóri Heimildarinnar, og Lovísa Arnardóttir, blaðamaður á Sýn, skrifa
Hlutverk blaðamanna sem notenda og miðlara opinberra gagna hefur aldrei skipt meira máli. Gagnakerfi opinberra aðila, á borð við Hagstofuna, mynda stoðir þeirra „sameiginlegu staðreynda“ sem heilbrigð opinber umræða og upplýstar ákvarðanir byggja á. Á sama tíma hefur upplýsingavistkerfi heimsins veikst. Sameiginlegur skilningur okkar er minni, túlkun á upplýsingum sundurleitandi og rangfærslur dreifast hraðar og átök eru oftar tilfinningadrifin frekar en að byggja á gögnum. Blaðamenn treysta fyrst og fremst á opinber og óumdeild gögn til að staðfesta samhengi, rýna fullyrðingar og leiðrétta rangfærslur. Staðreyndavöktun, eða fact checking, verður sífellt stærra verkefni ritstjórna á Íslandi og opinber gagnasöfn eru þar burðarás.
Blaðamenn eru þannig meðal stærstu og virkustu notenda opinberra gagna þó að það hlutverk sé sjaldan formgert í stefnumörkun opinberra gagnakerfa. Verk blaðamanna er að gera tölur að frásögn, mynstur að samhengi og flækjustig að skilningi. Þeir mynda brú milli sérfræðinga og almennings, sem sjaldan sækir hrá gögn beint í opinber kerfi og hafa ekki endilega tækifæri eða þekkingu til þess. Í þessu ferli felst bæði túlkun og miðlun: að útskýra hvað gögn sýna og ekki síður hvað þau geta ekki sagt okkur.
Gögn Hagstofunnar eru dæmi um gagnasöfn sem geta verið grundvöllur að fréttaflutningi, sem veitir bæði samhengi og mikilvægar upplýsingar fyrir almenning. Gögnin eru almennt aðgengileg og miðlað með stöðluðum gagnalýsingum, sem dregur úr misskilningi. En víðar í opinbera umhverfinu er staðan misgóð. Skönnuð PDF-skjöl og þunglamalegar Power BI-töflur eru enn allt of algengar hindranir sem hægja á fréttavinnu, draga úr greiningarmætti ritstjórna og ýta undir rangtúlkanir.
Ekki síst vegna þess að traust er sameiginleg auðlind, bæði fyrir opinbera aðila og fjölmiðla, er mikilvægt að mörkin séu skýr. Hagstofan, sem dæmi, á ekki að draga pólitískar eða samfélagslegar ályktanir af tölum. Það er hlutverk frjálsra og óháðra fjölmiðla að lesa úr mynstrum og afleiðingum gagnanna fyrir samfélagið. Til þess fá þeir sérfræðinga sem geta dýpkað gögnin og veitt þeim mikilvægt samhengi út frá sinni sérþekkingu.
Það eykur trúverðugleika frásagna þegar óháður miðill, en ekki stofnunin sem býr til gögnin, setur fram greiningar á því hvað tölurnar þýða fyrir fólk, atvinnulíf og stefnumótun. Þetta óháða samhengi er ekki galli á vinnubrögðum stofnana heldur eðlislæg krafa um að gögn fái trausta, gagnrýna og lýðræðislega meðhöndlun utan þeirra kerfa sem framleiða þau.
Undanfarið hafa margar stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki tekið að birta fréttir, viðtöl og greinar byggðar á eigin gögnum. Þar verða skil óljós milli upplýsingagjafar og ímyndarstjórnunar, sem getur grafið undan sameiginlegum staðreyndum, ýtt undir hagsmunadrifnar frásagnir og skapað skekkju í umræðu áður en blaðamenn ná að tengja punktana.
Í heimi hraða samfélagsmiðla, þar sem sá sem hefur hæst getur haft meiri áhrif en sá sem hefur rétt fyrir sér, eru tveir þættir afgerandi vörn: Að gögn séu áreiðanleg og opinber og að túlkun þeirra og framsetning sé óháð og skýr. Ef annar liðurinn glatast, veikist hinn. Gögn sem eru ekki sett í samhengi verða ekki að sameiginlegum staðreyndum, eða því sem kallað er á ensku: shared facts. Og greining sem er ekki byggð á óumdeildum gögnum verður ekki fagleg. Þegar þessir þættir mætast, verða gögnin að sameiginlegum grundvelli, óháð tilfinningum og sérhagsmunum.
Til að efla varnir gegn misskilningi og rangfærslum þurfa blaðamenn stöðugan og hraðan aðgang að opnum og uppfærðum gagnasöfnum, og skýrar og samræmdar gagnalýsingar og upplýsingar um hvað gögnin mæla og hvað ekki. Verkfæri til úrvinnslu og tæknilega greiður aðgangur að gögnum styðja svo ritstjórnir við að greina gögn hratt og draga úr villum.
Þetta eru ekki sérkröfur stéttar, heldur samfélagsleg fjárfesting. Því þegar blaðamenn fá tæki til að vinna hratt og af nákvæmni, verður almenningur fyrr raunverulegur stórnotandi opinberra gagna án þess að þurfa að rýna í frumgögn sjálfur.
Blaðamenn eru þannig í sinni vinnu vörn gegn frekari upplýsingaóreiðu. Það er mikilvægt fyrir bæði opinbera umræðu og traust til annarra stofnana samfélagsins. Þeir sem safna gögnum og fjölmiðlar eiga ekki að vera í samkeppni um framsetningu heldur virka saman sem stoðir heilbrigðrar og mikilvægrar umræðu. Þegar samstarf þeirra er virkt og aðgengisstig hátt, verður niðurstaðan sterkari en summa liðanna.
Greinin byggir á erindi sem flutt var á ráðstefnu Hagstofunnar, Gagnvist, í nóvember 2025.