- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðaljósmyndarafélag Íslands hefur opnað fyrir skil á myndum í árlegu blaðaljósmyndasamkeppnina Myndir ársins. Öllum meðlimum BÍ og Blaðaljósmyndarafélagsins býðst að taka þátt en skilafrestur mynda er til miðnættis þriðjudaginn 27. janúar 2026.
Veitt verða verðlaun í eftirfarandi flokkum:
• Daglegt líf
• Fréttir
• Íþróttir
• Portrett
• Seríur
• Umhverfi
Sýning á Myndum ársins verður áfram í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en sýningaropnun verður haldin með pompi og prakt laugardaginn 11. apríl. Meira um það síðar.
Nánari upplýsingar um skilareglur og fyrirkomulag má finna á vef Blaðaljósmyndarafélagsins.
Keppnin / sýningin er eingöngu fyrir meðlimi Blaðamannafélags Íslands og Blaðaljósmyndaraféalgsins.
Athygli er vakin á að flokkum var breytt aðeins í fyrir nokkrum árum svo við hvetjum öll til að kynna sér þátttökureglur á vefnum www.myndirarsins.com