- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Sigurjón M. Egilsson, einnig þekktur sem -sme, afhenti Blaðamannafélagi Íslands til eignar og varðveislu innbundin tölublöð tímaritsins Spegilsins sem komu út á árunum 1926-1967. Spegillinn var háðsádeilutímarit sem kom út með hléum á árunum 1926-1983. Blaðið var þekkt fyrir beitta samfélagsrýni, háðsleg skrif og vandaðar skopmyndir sem margir af helstu teiknurum þjóðarinnar teiknuðu, svo sem Halldór Pétursson, Ragnar Lár, Haraldur Guðbergsson og Brian Pilkington.
Þegar Sigurjón afhenti blöðin á skrifstofu BÍ sagði hann frá því að hann hafi fengið tölublöðin að gjöf frá Óskari Jóhannssyni kaupmanni í Sunnbúðinni en gjöfinni hafi fylgt sú kvöð að hann yrði að gefa blöðin áfram til einhvers sem myndi njóta þess að eiga þessa fallegu gjöf. "Ég hugsaði talsvert um hverjum eða hverri ég ætti að afhenta þetta merka safn," segir Sigurjón. "Ég tel mig hafa fundið rétta eigandann, það er sjálft Blaðamannafélag Íslands. Því afhenti ég formanni félagsins, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, þessa merku og fallegu gjöf til ævarandi eignar.
Blaðamannafélag Íslands þakkar sme fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Hægt er að skoða Spegilinn og fleiri eldri blöð og tímarit á skrifstofu BÍ á afgreiðslutíma.
