- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Frumvarp um breytingu á lögum um fjölmiðla (stuðningur við einkarekna fjölmiðla) var samþykkt á Alþingi rétt fyrir þinglok 19. júní. Með frumvarpinu er stuðningur við ritstjórnir einkarekinna fjölmiðla festur í sessi til fimm ára, 2026-2030, og jafnframt tryggt að hann verði greiddur út fyrr á árinu. Frumvarpið var samþykkt með 31 atkvæði. Fimm greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en 17 greiddu ekki atkvæði.
Blaðamannafélag Íslands hefur lengi kallað eftir auknum fyrirsjáanleika í stuðningi við einkarekna fjölmiðla og styður markmið frumvarpsins um að „efla ritstjórnir einkarekinna fjölmiðla í því skyni að styðja við fréttaþjónustu, lýðræðislega umræðu og treysta stöðu íslenskrar tungu“. Frumvarpið tók nokkrum breytingum frá því það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Meðal annars var tekið tillit til athugasemda BÍ, svo sem með því að einfalda skilyrði um kosningaumfjöllun á landsvísu, lækka kröfu um útgáfu prentmiðla úr 20 í 12 útgáfur og lækka kröfu um fjölda stöðugilda á ritstjórnum úr 25 í 20.
BÍ skilaði einnig umsögn um frumvarpið eftir að það kom til þingsins og kom athugasemdum á framfæri á fundi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Helstu atriði umsagnarinnar:
Þótt BÍ styðji markmið frumvarpsins og fagni því að stjórnvöld marki sér loks skýrari stefnu í málaflokknum er ljóst að meira þarf til að efla sjálfstæða fjölmiðla í landinu. Á tímum upplýsingaóreiðu, erlendra upplýsingaherferða og hraðrar þróunar gervigreindar verða traustir og sjálfstæðir fjölmiðlar sífellt mikilvægari. Að efla fjölmiðla, styrkja fjölmiðlafrelsi og auka miðlalæsi snertir því ekki aðeins útgefendur og stétt blaðamanna heldur er það mikilvægt lýðræðis- og þjóðaröryggismál. Stjórnvöld verða að hraða framkvæmd aðgerða í áætlun sinni í málefnum fjölmiðla og ráðast jafnframt í frekari aðgerðir til að tryggja öflugt og sjálfstætt fjölmiðlaumhverfi til framtíðar.