- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Stjórn Háskóla- og endurmenntunarsjóðs hefur ákveðið að hækka styrki sjóðsins um 50 þúsund krónur. Með breytingunni hækkar hámarksstyrkur úr 300.000 krónum í 350.000 krónum, miðað við fullan rétt í sjóðnum á 24 mánaða tímabili.
Aðrir styrkir hækka sömuleiðis um 50.000 krónur og verða eftirfarandi:
Námskeiðsgjöld: 250.000 kr.
Nám á háskólastigi: 350.000 kr.
Nám við Norrænu blaðamannamiðstöðina: 350.000 kr.
Ráðstefnur og málþing: 250.000 kr.
Ferðastyrkur: 150.000 kr.
Markmiðið með hækkuninni er að styðja enn betur við símenntun og faglega þróun félagsfólks BÍ á tímum þar sem kostnaður við nám og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi hefur farið hækkandi.
Endurmenntunarsjóður Blaðamannafélags Íslands styrkir endurmenntun og fræðslu félagsfólks með margvíslegum hætti. Sjóðurinn veitir meðal annars styrki til náms á háskólastigi, námskeiða, ráðstefna, málþinga og fræðslu- og kynnisferða, bæði innanlands og erlendis.
Sjóðurinn heldur einnig sjálfur námskeið og fræðsluviðburði fyrir félagsfólk.
Endurmenntunarsjóður BÍ býður jafnframt upp á sérstakan jöfnunarstyrk fyrir félagsfólk af landsbyggðinni til að sækja einn viðburð eða námskeið á vegum BÍ á ári. Sá styrkur hefur ekki áhrif á önnur réttindi í sjóðnum.
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér reglur sjóðsins og nýta sér aukinn stuðning til að efla þekkingu sína og styrkja sig í starfi.