- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Minnisblað frá Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni
Í báðum dómum Landsréttar var Páll Vilhjálmsson („áfrýjandi“) sýknaður af kröfum blaðamanna, annars vegar Arnars Þórs Ingólfssonar og Þórðar Snæs Júlíussonar og hins vegar Aðalsteins Kjartanssonar („blaðamennirnir“) um ómerkingu tilgreindra ummæla og greiðslu miskabóta. Í báðum tilvikum höfðu kröfur blaðamannanna verið teknar til greina af Héraðsdómi Reykjavíkur. Beiðni blaðamannanna um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar var hafnað í báðum tilvikum. Í minnisblaði þessu er, að beiðni Blaðamannafélags Íslands, lagt mat á fordæmisgildi dómanna og þýðingu þeirra fyrir starfsskilyrði blaðamanna á Íslandi.
Dómar Landsréttar í málum nr. 240/2023 og nr. 377/2024 hafa verulega þýðingu fyrir starfsumhverfi blaðamanna á Íslandi. Þeir marka skýrari línur en áður um jafnvægið milli tjáningarfrelsis skv. 73. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og verndar æru og friðhelgi einkalífs skv. 71. gr. sömu laga, einkum þegar blaðamenn eru sjálfir viðfangsefni opinberrar umræðu og ekki síst ef þeir hafa réttarstöðu sakbornings vegna atvika sem tengjast störfum þeirra, sem þó er sjaldgæft. Niðurstaða dómanna felur í sér að svigrúm til harðrar og óvæginnar gagnrýni á störf blaðamanna, er rýmra við slíkar aðstæður en ella hefði verið talið, auk svigrúms til að viðhafa ummæli sem vart verða flokkuð sem gagnrýni heldur persónulegar árásir.
Í báðum málunum var sama einstaklingi, Páli Vilhjálmssyni, stefnt af blaðamönnum vegna ummæla sem hann birti á bloggsíðu sinni og fólu í sér alvarlegar ásakanir um refsiverða háttsemi, þ.e. aðild að byrlun og þjófnaði í því skyni að afla efnis í fréttir. Landsréttur sneri við dómum héraðsdóms í báðum tilvikum og sýknaði áfrýjandann. Lykilforsendur réttarins voru samhljóða og byggðu á samspili þriggja þátta. Í fyrsta lagi var litið til þess að ummælin voru hluti af víðtækri og hvassri þjóðfélagsumræðu um mikilvæg samfélagsleg málefni. Í öðru lagi voru blaðamennirnir taldir vera opinberar persónur sem vegna starfa sinna yrðu að þola meiri harðari ummæli en almenningur.
Þriðja atriðið í báðum Landsréttardómunum, sem skipti umtalsverðu máli, var sú staðreynd að blaðamennirnir höfðu réttarstöðu sakborninga í sakamálarannsókn sem beindist að þeim atvikum sem ummælin lutu að. Í dómi nr. 240/2023 segir: „Þótt ummælin séu vissulega beinskeytt og óvægin, verður að líta til þeirrar staðreyndar að stefndu höfðu stöðu sakborninga og sættu, þegar ummælin féllu, rannsókn lögreglu vegna mögulegrar aðildar, beinnar eða óbeinnar, að brotum á nefndum ákvæðum hegningarlaga.“ Með vísan til þessa komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að Páll Vilhjálmsson hefði mátt vera í góðri trú um að nægilegt tilefni væri fyrir hinum umþrættu ummælum. Sú staðreynd ein að lögreglurannsókn stóð yfir veitti ásökunum þannig nokkurs konar staðreyndagrunn, nægilega traustan til að ummælin féllu undir vernd tjáningarfrelsis, fremur en að teljast tilhæfulausar aðdróttanir í skilningi 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þýðingin fyrir starfsumhverfi blaðamanna er vafalaust sú að æruvernd blaðamanna reynist vera takmarkaðri en annarra þegar þeir verða sjálfir að viðfangsefni opinberrar umræðu og sakamálarannsóknar sem tengist starfi þeirra. Þeir verða að vera viðbúnir því að ásakanir, sem í öðru samhengi kynnu að vera dæmdar ómerkar, verði taldar rúmast innan tjáningarfrelsis annarra á þeim grundvelli að ummælahöfundur hafi mátt vera í góðri trú sökum yfirstandandi rannsóknar. Þetta skapar réttaróvissu og víkkar út mörk þess sem telst ásættanleg gagnrýni, enda er sú ályktun Landsréttar í meira lagi vafasöm að skrif Páls hafi falið í sér gagnrýni á vinnubrögð blaðamanna. Hvað sem líður niðurstöðu Landsréttar fólu skrif Páls í sér ásakanir um refsiverða háttsemi, sem ekkert eiga skylt við gagnrýni á störf blaðamanna.
Í dómaframkvæmd, sbr. m.a. dóm Hæstaréttar í máli nr. 200/2013, hefur verið lögð rík áhersla á skyldu fjölmiðla til að sannreyna upplýsingar áður en þær eru birtar, sbr. einnig dóm Landsréttar í máli nr. 433/2019, þar sem Landsréttur áréttaði kröfu til blaðamanna um nákvæm og vönduð vinnubrögð. Dómar Landsréttar í nefndum málum fela í sér að þegar um er að ræða umfjöllun um opinberar persónur sem sæta sakamálarannsókn, kann krafa um nákvæm og vönduð vinnubrögð að vera vægari gagnvart þeim sem tjáir sig um málið, enda byggir rétturinn þá umfjöllun sína á þeirri staðreynd að rannsókn væri í gangi, en ekki hvað hún hafi leitt í ljós. Dómarnir í málum 240/2023 og 377/2024 ganga þannig skrefi lengra en fyrri dómar í ærumeiðingarmálum með því að staðfesta að réttarstaða sakbornings geti ein og sér talist nægilegur staðreyndagrunnur til að réttlæta mjög alvarlegar ásakanir af hálfu þriðja aðila. Til þessa hafa dómstólar ekki talið það eiga að hafa þýðingu, sbr. þá meginreglu 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár Íslands um að sakaður maður teljist saklaus uns sekt er sönnuð fyrir dómi. Ekki verður séð hvernig sú niðurstaða sé í samræmi við nefnt stjórnarskrárákvæði að vítalaust sé að fullyrða að sakaður maður hafi framið bæði það lögbrot sem hann er sakaður um, sem og önnur lögbrot sem hann er ekki sakaður um, bara af því viðkomandi er sakborningur.
Í stuttu máli munu þessir dómar hafa þau áhrif að blaðamenn, sem sjálfir verða viðfang sakamálarannsóknar vegna starfa sinna, þurfa að gera ráð fyrir að starfsumhverfi þeirra verði harðara og þeir verði berskjaldaðri fyrir óvæginni og ásakandi umræðu. Vernd þeirra til æru og friðhelgi einkalífs kann þá að þurfa að víkja í ríkari mæli en áður fyrir tjáningarfrelsi annarra, enda séu ummæli sett fram í samhengi við þjóðfélagsumræðu og byggi á staðreynd rannsóknarinnar. Í því felst að réttur blaðamanna til friðhelgi einkalífs er minni en áður.