Þegar við erum ekki lengur sammála um staðreyndir

Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir sjálfstæða fjölmiðla vera …
Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir sjálfstæða fjölmiðla vera lykilforsendu lýðræðislegrar umræðu á tímum eftirsannleika. Ljósmynd: Anton Brink

Erla Hlynsdóttir skrifar

Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að ein alvarlegasta birtingarmynd eftirsannleika (e. post-truth) sé að sameiginlegur staðreyndagrundvöllur fyrir lýðræðislega umræðu veikist. Með eftirsannleika á Maximilian við þróun þar sem staðreyndir og fagleg þekking hafa sífellt minni áhrif á opinbera umræðu, á meðan tilfinningar, pólitísk markmið og fullyrðingar sem ekki byggja á staðreyndum fá aukið vægi.

Hann bendir á að lýðræðisleg umræða verði ómöguleg ef fólk byggir á ólíkum „staðreyndum“ – annars vegar vísindalega studdum upplýsingum og hins vegar fullyrðingum sem eru settar fram sem sannar þrátt fyrir að vera tilbúnar, svokölluðu sannlíki (e. alternative fact).

Maximilian segir að þessi þróun hafi verið sýnileg í vestrænum lýðræðisríkjum í yfir áratug og meðal annars komið fram í uppgangi popúlískra stjórnmálahreyfinga. „Það er ekki lengur þannig að það að halda sig við staðreyndir tryggi sigur í rökræðu,“ segir hann.

„Eftirsannleikur er, í vissum skilningi, strategía eða tæki til að ná pólitískum markmiðum,“ segir Maximilian og bætir við að slík markmið beinist oft gegn frjálslyndu lýðræði og þeim réttindum og gildum sem því fylgja.

Hluti af alþjóðlegu mynstri

Eftirsannleikur og áhrif hans á lýðræðislega umræðu liggja til grundvallar rannsóknarverkefnisins RECLAIM (Reclaiming Liberal Democracy in the Postfactual Age), sem Maximilian stýrði. RECLAIM var þriggja ára evrópskt rannsóknarverkefni, styrkt af Horizon Europe, sem lauk í september. Verkefnið var sett á laggirnar til að rannsaka hvernig breytt upplýsingaumhverfi, rangar og villandi upplýsingar og skert traust hafa áhrif á stjórnmálamenningu og lýðræðislegar stofnanir í Evrópu. Verkefninu er formlega lokið en greining gagna og úrvinnsla niðurstaðna stendur enn yfir.

Samkvæmt Maximilian var verkefnið mótað út frá þeirri forsendu að ekki nægði að skoða einstaka þætti eina og sér. „Við vildum taka þetta kerfisbundið, brjóta fyrirbærið niður í nokkur meginatriði og skoða hvert þeirra fyrir sig, til að geta rannsakað samspil þeirra,“ segir hann. RECLAIM beindist því að fjölmiðlum og blaðamennsku, samfélagsmiðlum, borgaravitund og menntun, auk trausts, tortryggni og alþjóðlegra áhrifa, þar á meðal skipulagðrar upplýsingaóreiðu yfir landamæri.

Í því samhengi bendir Maximilian á að eftirsannleikur sé ekki aðeins bundinn við einstök ríki, heldur hluti af alþjóðlegu mynstri. Verkefnið hafi meðal annars skoðað hvernig rangfærslur og upplýsingaóreiða eru nýttar markvisst af erlendum ríkjum til að veikja lýðræðisleg samfélög. Slíkar aðgerðir séu í dag oft skilgreindar sem fjölþáttahernaður (e. hybrid warfare) og miði ekki endilega að því að sannfæra fólk um eina tiltekna frásögn, heldur að grafa undan trausti, skapa óvissu og veikja sameiginlegan skilning á veruleikanum.

Grefur undan lýðræðislegri umræðu

Eitt af því sem rannsóknir RECLAIM varpa ljósi á er hvernig eftirsannleikur er notaður til að grafa undan lýðræðislegri umræðu með því að hafna gagnrýninni umfjöllun. Maximilian hafnar því að nota hugtakið falsfréttir (e. fake news) sem greiningartæki. „Þetta hugtak er notað á svo ólíkan hátt að það hefur lítið greiningargildi,“ segir hann. Að hans mati hafi það í auknum mæli verið notað til að gera lítið úr fjölmiðlum. „Að stimpla fréttir fjölmiðla sem falsfréttir snýst ekki bara um að ráðast á blaðamenn heldur um að þurfa ekki lengur að svara gagnrýnum spurningum.“

Hér tengir Maximilian eftirsannleika beint við hlutverk fjölmiðla í lýðræðissamfélagi. „Lýðræði krefst þess að pólitískir leiðtogar séu reiðubúnir að svara gagnrýnum spurningum og rökstyðja stefnu sína opinberlega.“ Þegar stjórnmálamenn hafni því alfarið að svara fjölmiðlum, eða velja aðeins miðla sem eru hugmyndafræðilega á sömu línu og þeir, sé ekki aðeins verið að sniðganga hefðbundin samskipti við fjölmiðla heldur að veikja einn af grundvallarþáttum lýðræðislegrar umræðu. Í slíkum tilvikum verði yfirlýsingar stjórnmálamanna á samfélagsmiðlum í reynd staðgengill fyrir gagnrýna umfjöllun, án þess að tækifæri gefist til að bera upp gagnrýnar spurningar eða setja hlutina í samhengi.

Árásir á fjölmiðla

Í þessu samhengi setur Maximilian fjölmiðla í samhengi við aðra lýðræðislega innviði. „Við sjáum árásir á sjálfstæði dómsvaldsins, á gagnrýna fjölmiðla og á stofnanir sem halda uppi lýðræðinu,“ segir hann. Að hans mati er ekki um óskyld fyrirbæri að ræða heldur samhangandi mynstur, þar sem markvisst er ýtt undir tortryggni gagnvart faglegri þekkingu og sjálfstæðum stofnunum.

Rannsóknir RECLAIM sýna jafnframt að þessi þróun birtist með ólíkum hætti eftir löndum. Maximilian segir að í sumum samfélögum sé enn hátt traust til hefðbundinna fjölmiðla og opinber umræða byggi að miklu leyti á sama staðreyndagrundvelli, á meðan hún sé mun sundurleitari annars staðar. Hann nefnir að Norðurlöndin falli almennt í fyrrnefnda flokkinn þar sem traust til hefðbundinna miðla sé meira en víða annars staðar. Um leið varar hann við því að slíkt ástand sé ekki sjálfgefið eða varanlegt heldur háð pólitískum vilja og þeirri menningu sem mótar samskipti stjórnmála, fjölmiðla og almennings.

Einn hluti verkefnisins beindist sérstaklega að fjölmiðlum og trausti til blaðamennsku. Maximilian bendir á að sífellt meiri hraði í fréttaflutningi hafi haft áhrif á vinnuaðstæður blaðamanna. „Skortur á trausti gagnvart fjölmiðlum á sér oft rætur í mistökum sem verða vegna þessa hraða,“ segir hann. Slík mistök séu síðan nýtt í pólitískum tilgangi af þeim sem hafi hagsmuni af því að ala á tortryggni gagnvart fjölmiðlum og faglegri blaðamennsku.

Hann varar jafnframt við því að hefðbundnir fjölmiðlar reyni að laga sig að samfélagsmiðlum, þar sem hraði og athygli eru sett í forgang til að halda athygli almennings. Að hans mati hafi blaðamennska annað hlutverk en samfélagsmiðlar. Hún eigi að byggja á heimildum, þekkingu og samhengi, og gera flókin mál skiljanleg.

Fólk lifir í ólíkum veruleika

Maximilian segir jafnframt að rannsóknir RECLAIM hafi sýnt að fólk búi sífellt oftar í ólíkum upplýsingaumhverfum. „Við sjáum að fólk lifir í mjög ólíkum veruleika,“ segir hann og bætir við að þetta eigi sérstaklega við um ungt fólk. Í viðtölum sem tekin voru fyrir verkefnið hafi komið fram að ungir einstaklingar sæki upplýsingar í afar ólíka miðla og rásir, þar sem sömu sjónarmið og frásagnir endurtaka sig. Við slíkar aðstæður lokast umræðan og fólk verður síður vart við gagnrýni eða andstæð sjónarmið.

Hann bendir á að í slíkum bergmálshellum mótist hugmyndir og gildi án þess að mæta gagnrýnni umræðu eða andstæðum sjónarmiðum. Að hans mati hafi þetta bein áhrif á lýðræðislega umræðu, þar sem sameiginlegur skilningur á staðreyndum veikist. „Ef við erum ekki lengur að deila sama staðreyndagrundvelli, þá verður mjög erfitt að ræða pólitísk ágreiningsmál á lýðræðislegan hátt,“ segir hann.

Maximilian bendir jafnframt á að ör þróun gervigreindar bæti enn við þá óvissu sem hann lýsir. „Þetta eykur það sem ég kalla þekkingarlega óvissu, að vita einfaldlega ekki lengur hvað er satt,“ segir hann. Með hraðri þróun gervigreindar og sífellt meira sannfærandi framleiðslu á texta, myndum og hljóði verði erfiðara að greina á milli staðreynda og efnis sem er framleitt af gervigreind.

Hann segir að þessi þróun sýni hversu varasamt sé að taka sameiginlegan skilning á veruleikanum sem sjálfsagðan hlut. „Þetta eru hlutir sem margir töldu sjálfsagða, en þeir reynast mun viðkvæmari en við héldum,“ segir hann.

Maximilian telur að viðbrögð við eftirsannleika geti ekki eingöngu falist í breytingum innan fjölmiðla. Hann segir nauðsynlegt að grípa til aðgerða á sviði opinberrar stefnumótunar, meðal annars með því að efla borgaravitund og miðlalæsi. Í því samhengi leggur hann áherslu á að fræðsla snúist ekki aðeins um það hvernig samfélagsmiðlar virka, heldur einnig um það hvað fagleg blaðamennska er, hvernig hún er unnin og hvers vegna hún gegnir lykilhlutverki í lýðræðissamfélagi.

Um þetta er hann afdráttarlaus. „Sjálfstæðir fjölmiðlar eru lykilatriði í hverju einasta lýðræðissamfélagi,“ segir Maximilian. „Ef þú ert ekki með sjálfstæða fjölmiðla, þá er mjög erfitt að ímynda sér hvernig lýðræði starfar.“