- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Erla Hlynsdóttir skrifar
Gard Steiro, framkvæmdastjóri norska fréttamiðilsins VG, svarar afdráttarlaust þegar hann er spurður hvort gervigreind ógni blaðamennskunni: „Já, blaðamennska er í hættu.“ Að hans mati stendur greinin nú frammi fyrir einni veigamestu kerfisbreytingu sem komið hefur til, breytingu sem snýr ekki aðeins að nýjum verkfærum, heldur að sjálfum grunni fjölmiðla: hvernig fréttir verða til, hvernig þær berast til almennings og hvaða efnahagslegu forsendur liggja til grundvallar starfseminni.
„Þetta er ekki bara tæknibreyting,“ segir Steiro. „Þetta er grundvallarbreyting á því hvernig fólk finnur upplýsingar, hvernig það nálgast fréttir og hvernig fjölmiðlar tengjast lesendum sínum.“
Að hans mati er mikilvægt að horfast í augu við alvarleika stöðunnar, án þess þó að festast í svartsýni. Gervigreind feli í sér bæði mikla ógn en líka veruleg tækifæri, og lykilatriðið sé hvernig fjölmiðlar bregðist við.
Ein stærsta ógnin, að mati Steiro, snýr að dreifingu frétta og sambandi fjölmiðla við almenning. Með tilkomu gervigreindar sé almenningur í auknum mæli farinn að nálgast upplýsingar með öðrum hætti en áður. „Við erum í stöðu þar sem fólk getur byrjað að nota gervigreindarfulltrúa í stað þess að fara inn á fréttamiðla,“ segir hann. Slíkir fulltrúar, eða „AI agents“, geti safnað, síað og sett fréttaefni fram fyrir notendur án þess að þeir heimsæki sjálfa fjölmiðlana. Þetta hafi ekki aðeins áhrif á sýnileika fjölmiðla heldur líka á tekjugrunn þeirra. „Ef fólk hættir að koma beint til okkar, þá breytir það öllu; auglýsingum, áskriftum og því hvernig við réttlætum fjárfestingu í vandaðri blaðamennsku.“
Hin hlið ógnarinnar snýr að sjálfu handverki blaðamennskunnar. Steiro segir að stór hluti þeirrar vinnu sem fer fram í fréttastofum í dag sé í eðli sínu staðlaður flutningur upplýsinga. „Mikið af því sem við gerum í fréttastofum í dag er einfaldlega flutningur upplýsinga frá A til B,“ segir hann. Hann nefnir dæmi eins og fréttatilkynningar, íþróttaúrslit og annars konar staðlað efni. „Við fáum upplýsingar, endurskrifum þær og birtum.“
Að hans mati muni slík blaðamennska annaðhvort hverfa eða verða sjálfvirk á næstu árum. „Og það er alls ekki víst að fjölmiðlar verði bestir í að gera það,“ bætir hann við og bendir á að tæknifyrirtæki gætu gert þetta hraðar og ódýrar.
Þrátt fyrir þessa greiningu telur Steiro ekki að blaðamennska sé dæmd til þess að deyja út. Þvert á móti geti gervigreind gert gildi hennar skýrara en áður ef fjölmiðlar bregðast rétt við. „Ef við einblínum bara á ógnina þá munum við ekki sjá tækifærin,“ segir hann. Að hans mati sé lykilatriði að fjölmiðlar bregðist hratt við, með tilraunastarfsemi og skýrri stefnu.
Stefna VG byggir á því að nýta gervigreind til að færa blaðamennsku ofar í virðiskeðjunni. Með því að láta vélar taka yfir endurtekna, staðlaða og tímafreka vinnu skapist svigrúm fyrir blaðamennsku sem hefur raunverulegt samfélagslegt gildi.
„Það sem við viljum gera er að færa blaðamennsku upp virðiskeðjuna,“ segir Steiro. Í því felist meiri áhersla á frumheimildir, greiningu, rannsóknir og nærveru - blaðamennsku sem byggir á mannlegum tengslum og trausti.
Steiro telur að sú blaðamennska sem lifir af verði sú sem gervigreind getur ekki leikið eftir, og nefnir í því sambandi dómgreind blaðamannsins, siðferðilegt mat og persónulega nálgun.
„Ég hef sagt að þetta geti orðið endurreisn hins klassíska blaðamannahandverks,“ segir hann. „Blaðamenn sem búa yfir einstökum heimildum, geta greint flókin mál og eru góðir pennar, þeir verða mikilvægari en nokkru sinni fyrr.“
Hann bendir einnig á að í framtíðinni muni fjölmiðlar þurfa blaðamenn sem geti verið sýnilegir og trúverðugir fulltrúar ritstjórna: „Fólk sem lesendur þekkja og treysta.“
Traust er rauður þráður í máli Steiro. Í umhverfi þar sem sífellt meira efni verður sjálfvirkt, persónusniðið og með óljósan uppruna telur hann að almenningur muni í auknum mæli leita til þeirra miðla sem hann treystir. „Traust mun verða enn mikilvægara í framtíðinni en það er í dag,“ segir hann. „Ef við náum að sýna að við stundum mikilvæga, vandaða og samfélagslega nauðsynlega blaðamennsku, þá munum við áfram skipta máli.“
Steiro leggur ríka áherslu á að gervigreind sé tæki en ekki staðgengill blaðamanna. „Gervigreind er ekki hér til að leysa þig af hólmi. Hún er hér til að vera aðstoðarmaður,“ segir hann og líkir áhrifunum við tilkomu snjallsímans eða fyrstu einkatölvunnar.
Hann bætir þó við mikilvægum fyrirvara; gervigreind sé einnig heimild og þurfi að meðhöndla hana sem slíka. „Þú verður að horfa á gervigreind eins og aðrar heimildir,“ segir hann. Hún geti gefið vísbendingar, samantektir og hjálpað til við greiningu, en ábyrgðin á sannprófun og endanlegu mati liggi alltaf hjá blaðamanninum. Það sé því grundvallarregla að blaðamaður komi alltaf að efninu. „Þú birtir ekki neitt nema manneskja hafi farið yfir efnið,“ segir hann.
VG hefur sett sér skýrar leiðbeiningar um notkun gervigreindar. Þar er lögð áhersla á gagnsæi gagnvart lesendum og að fólk yfirfari allt efni. Sérstaklega er farið varlega í notkun gervigreindar þegar kemur að myndefni. „Við erum mjög treg til að nota gervigreind í ljósmyndum,“ segir Steiro. „Það er einfaldlega vegna þess að við viljum vernda traustið sem fólk hefur á myndunum sem við birtum.“ Ef gervigreind er notuð þurfi það að vera skýrt merkt.
Gagnaöryggi er annað lykilatriði. Steiro undirstrikar að blaðamenn megi ekki deila innanhússgögnum, heimildum eða viðkvæmum upplýsingum með stórum mállíkönum nema full stjórn sé á notkun þeirra. „Það er raunveruleg hætta á að þú afhjúpir heimildamenn eða viðkvæmar upplýsingar ef þú veist ekki nákvæmlega hvað þú ert að gera,“ segir hann.
Steiro lýsir þremur megináherslum VG í notkun gervigreindar. Í fyrsta lagi að þróa betri verkfæri fyrir blaðamenn. „Markmiðið er að gera blaðamenn skilvirkari og betri í starfi sínu,“ segir hann. Í öðru lagi að nýta tæknina til að miðla efninu á nýjan hátt til notenda. Þar nefnir hann spjallmenni á vef, sjálfvirka umbreytingu texta í hljóð og ný stafræn snið. Í þriðja lagi að styrkja fréttaöflun með því að vinna markvisst úr gagnasöfnum. „Það eru til gríðarleg gagnasöfn hjá stjórnvöldum, á fjármálamörkuðum og í íþróttum,“ segir Steiro. Verkefni sem áður voru tæknilega flókin og tímafrek séu nú mun aðgengilegri með hjálp gervigreindarinnar.
VG er í samstarfi við OpenAI, líkt og fleiri stórir miðlar á borð við The Guardian og Le Monde. Steiro segir eitt grundvallaratriði skipta þar mestu máli: viðurkenning á því að blaðamennska hafi fjárhagslegt gildi. „Þeir eru að greiða fyrir efnið okkar. Ekki mikið, en þeir eru að greiða,“ segir hann. „Og það skiptir máli, ekki vegna upphæðarinnar heldur vegna prinsippsins.“
Samstarfið veiti einnig innsýn í hvernig almenningur notar spjallmenni til að leita sér frétta og hjálpi miðlinum að skilja breytingar á því hvernig fólk nálgast fréttir. Að auki vinni fjölmiðlarnir og OpenAI saman að þróun nýrra verkfæra fyrir blaðamenn.
VG festir sig þó ekki við eitt líkan. „Við erum að nota Claude, við erum að nota Gemini, við erum að nota OpenAI,“ segir Steiro. Allir blaðamenn hafi aðgang að fyrirtækjaútgáfu af ChatGPT í öruggu umhverfi.
Ráð Steiro til íslenskra blaðamanna eru skýr: Ef gervigreind er ekki komin inn í stefnu og starfsemi ritstjórna þurfi að bregðast við strax. „Ef þið eruð ekki að nota þessi verkfæri, þá er mjög líklegt að lesendur ykkar séu að nota þau,“ segir hann. Hann varar sérstaklega við því að blaðamenn noti gervigreind upp á eigin spýtur án sameiginlegrar stefnu og fræðslu innan ritstjórnar. „Það er áhætta,“ segir hann. „Þá lærir fólk ekki hvert af öðru og hættan á mistökum eykst.“
Hjá VG er fræðsla um gervigreind hluti af innleiðingunni. „Allir verða að nota þetta,“ segir Steiro. Hann hvetur blaðamenn til að byrja einfaldlega að prófa. „Það er engin handbók til,“ segir hann. „Best er að byrja á endurteknum verkefnum í daglegu starfi og sjá hvað gerist.“
Steiro segir erfitt, jafnvel ómögulegt, að spá nákvæmlega fyrir um framtíðina þegar kemur að áhrifum gervigreindar á blaðamennsku. Hann lýsir þó tveimur gjörólíkum sviðsmyndum.
Í þeirri dystópísku muni fólk hætta að heimsækja fréttamiðla, gervigreindarfulltrúar safni saman persónusniðnum fréttum og aðeins lítill hópur borgi fyrir hefðbundna blaðamennsku. „Margir miðlar fara á hausinn og mörg störf hverfa,“ segir hann.
Í öllu bjartsýnni sviðsmynd þá takist fjölmiðlum að nýta gervigreind til að styrkja það sem þeir gera best. „Það sem mun bjarga okkur er að við stundum vandaða blaðamennsku sem fólk treystir,“ segir Steiro. „En til þess verðum við að tileinka okkur gervigreind. Ef við höldum bara áfram að gera það sem við gerum í dag þá er ég viss um að sú dystópíska verði raunin.“ Þannig er það ekki gervigreindin sjálf sem skiptir sköpum að hans mati heldur hvernig fjölmiðlar bregðist við tilkomu hennar. Að mati Gard Steiro er valið enn til staðar. „Tíminn er hins vegar naumur.“
VG heyrir undir Schibsted, eina stærstu og áhrifamestu fjölmiðlasamsteypu Norðurlanda. Hún hefur lengi gegnt lykilhlutverki í þróun norrænnar blaðamennsku og rekur nokkra af stærstu fréttamiðlum í Noregi og Svíþjóð, þar á meðal VG, Aftenposten og E24 í Noregi og Aftonbladet og Svenska Dagbladet í Svíþjóð.
Árið 2024 var starfsemi Schibsted skipt í tvo aðskilda hluta; fjölmiðlastarfsemin er í eigu Tinius Trust og starfar áfram undir nafninu Schibsted, en rekstur stafrænna markaðstorga var settur undir annað félag.
Schibsted hefur unnið markvisst að þróun og innleiðingu gervigreindar í blaðamennsku. Samsteypan hefur gert samstarfssamning við OpenAI þar sem efni miðla hennar er gert aðgengilegt innan gervigreindarlausna með skýrum vísunum í upprunalegar heimildir.