- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Siðavefur
- Lög og reglugerðir tengdar blaðamennsku
- Blaðamaðurinn
- Ritstjórnarlegt sjálfstæði
- Aðgengi að hættusvæðum
- Viðburðir
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Umbreytingar í öllum rekstri og starfsemi félagsins, öflugt félagsstarf og kraftmikil hagsmunagæsla gagnvart stjórnsýslu og stjórnmálum einkenndi starfsárið 2024-2025 en fráfarandi stjórn kynnti skýrslu stjórnar á aðalfundi félagsins þann 8. apríl.
Kjarasamningar voru undirritaðir í maí þar sem samninganefnd náði að knýja fram tímabærar kjarabætur fyrir félagsmenn umfram það sem samið var um á almennum markaði. Vel heppnaðri vitundarherferð um mikilvægi blaðamennsku var hrint úr vör til að hafa áhrif á samfélagslega umræðu. Henni var fram haldið í aðdraganda Alþingiskosninganna 2024 með áskorun stjórnar og viðtölum við formenn stjórnmálaflokka til að draga fram hvaða aðgerðir þeir teldu nauðsynlegar til að efla blaðamennsku og fjölmiðla í landinu. Lagt var upp með að tryggja að loforð um hagsmunamál blaðamanna rati inn í stefnu næstu ríkisstjórnar. Þá var fundað reglulega með ráðherra menningarmála á árinu um fjölmiðlastefnu og -styrki og með sérfræðingum dómsmálaráðuneytisins, lögreglustjóranum á Suðurnesjum og Almannavörnum um aðgengi blaðamanna að hættusvæðum.
Stærsti viðburður starfsársins var án efa Lausnamót um framtíð fjölmiðla og blaðamennsku sem fór fram í mars þar sem 70 þátttakendur víða að úr samfélaginu komu saman til að finna lausnir við áskorunum sem blasa við blaðamönnum og fjölmiðlum. Niðurstöður stefnumótunarvinnunnar sem fór fram á mótinu verða gefnar út á næstunni.
Stjórn hefur tekið meðvitaða ákvörðun um að leggja áherslu á hagsmunabaráttu sem er eitt hið mikilvægasta í starfsemi félagsins. Það á ekki síst við á tímum sem þessum, þar sem hart sótt er að blaðamennsku á sama tíma og erlendir tæknirisar grafa undan rekstraröryggi fjölmiðla og þar með starfsöryggi félagsmanna með því að soga til sín auglýsingafé. Talsverður tími, orka og fjármunir fara í þessa hagsmunagæslu en stjórn hefur fengið jákvæða endurgjöf frá félagsmönnum um þessa stefnubreytingu og jafnframt það hve félagið er orðið virkt og sýnilegt út á við.
Þá hefur félagið sett saman metnaðarfulla fræðsluáætlun fyrir félagsmenn sem byggð var á niðurstöðum úr könnun um þarfir og áhuga félagsmanna á fræðslu og endurmenntun á vegum félagsins. Þegar hefur verið haldið metnaðarfullt námskeið um verkfæri gervigreindar fyrir blaðamenn, og fleiri framundan.
Skýrslu stjórnar má nálgast í heild sinni á Mínum síðum félagsmanna.