- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Erla Hlynsdóttir skrifar
Að mati Finnboga Jónassonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, stendur íslenskt samfélag frammi fyrir ógn sem er „fjölþætt, hröð og sífellt erfiðari viðfangs“: upplýsingaóreiðu og falsfréttum sem grafa undan trausti, samstöðu og lýðræði.
„Ég held við séum ekki nægjanlega meðvituð um þessa stöðu,“ segir hann. Greiningardeildin hefur ítrekað varað við þessari þróun, svo sem í skýrslum um hryðjuverkaógn og skýrslu um fjölþáttaógnir, en Finnbogi upplifir að almenningur geri sér enn ekki fulla grein fyrir umfangi vandans.
Í hættumatsskýrslunum horfir greiningardeildin meðal annars til öfgahyggju og þess hvernig fólk sogast inn í róttæka hugmyndafræði í gegnum netið. Í skýrslunni um fjölþáttaógnir frá 2023 er síðan lýst sambærilegum aðferðum sem erlend ríki beita; þau nota stafræna miðla til að hafa áhrif á skynjun almennings á alþjóðlegum málefnum, meðal annars með dreifingu falsaðs eða blekkjandi efnis, stýrðri dreifingu efnis á samfélagsmiðlum og markvissri skautun umræðu.
„Þetta er fjölþættur vandi,“ segir Finnbogi. Öfgahópar og erlend stjórnvöld beiti í grunninn sömu tækni, misvísandi eða fölsuðu efni, en markmiðið sé oft að veikja traust og samstöðu í vestrænum samfélögum.
Tungumálið verndi Íslendinga síður en áður. Flestir hér tali og lesi ensku og íslenskt samfélag sé því í beinni snertingu við sömu strauma og togstreitu sem ræður för í stærri ríkjum. „Þó að upplýsingunum sé ekki beint að Íslandi þá hafa þær áhrif hér á landi ef þær eru á ensku,“ segir hann.
Gervigreind hafi síðan flýtt fyrir og dýpkað vandann. Textar sem áður báru með sér augljós spor vélþýðinga séu orðnir nánast óaðgreinanlegir frá textum skrifuðum af fólki. „Það er eiginlega búið í dag,“ segir Finnbogi. Lesandi sem flettir hratt í gegnum færslu á samfélagsmiðli eigi í mörgum tilvikum enga raunhæfa leið til að sjá hvort textinn sé hluti af markvissri herferð eða tilviljanakennd skoðanayfirlýsing.
Af hverju skiptir þetta máli? Finnbogi segir upplýsingaóreiðu ekki bara teknískt vandamál heldur samfélagslegt. „Þetta eykur skautun í samfélaginu,“ segir hann. „Ég les eina hliðina og tileinka mér hana, þú lest aðra hlið og tileinkar þér hana. Og við erum bæði sannfærð um að við höfum lesið sannleikann.“
Afleiðingarnar af þessu séu gríðarlegar; upplýsingaóreiða hafi áhrif á samskipti fólks, á félagslegt traust og á lýðræðislega umræðu. Hann bendir á erlendar rannsóknir sem sýni að fólk veigri sér við að taka þátt í stjórnmálum og opinberri umræðu vegna skautunar og persónulegra árása. „Ef fólk er ekki tilbúið til þess að taka það á sig, þá er mjög erfitt að vera inni í þessu umhverfi,“ segir hann.
Þannig skapist vítahringur þar sem þeim fækkar sem treysta sér til að taka þátt í opinberri umræðu og þeim fækkar líka sem leiðrétta rangfærslur og bæta þar með gæði upplýsinga. „Ef við fáum ekki gott fólk til að taka þátt þá hefur það gríðarleg áhrif á samfélagið allt og lýðræðið sem við byggjum það á,“ segir hann.
Erlend stjórnvöld sem standi að markvissum upplýsingaherferðum beini gjarnan sjónum að málefnum þar sem skautun sé þegar til staðar: útlendingamálum, réttindum hinsegin fólks, umfjöllun um múslima og öðrum deilumálum. „Það er verið að yfirfæra umfjöllun erlendis yfir á íslenskt samfélag,“ segir Finnbogi, og þannig búa til eða magna upp átök sem áður voru lítil eða jafnvel ekki til staðar hér á landi.
Sumum kann að þykja fjarstæðukennt að stór ríki leggi sérstaka áherslu á að hafa áhrif á umræðu á Íslandi. Finnbogi bendir á að Ísland sé hluti af vestrænu bandalagi, stofnmeðlimur í NATO, og að það skipti máli hverjir stjórni landinu og hvernig ráðamenn túlki skuldbindingar Íslands.
Umræður um aðild að Evrópusambandinu sé dæmi um viðkvæmt mál þar sem hættan á kerfisbundinni upplýsingaóreiðu sé raunveruleg. „Hvaða skoðun sem menn hafa á því, þá skiptir máli að sú umræða geti verið fagleg og lýðræðisleg,“ segir hann. Mikilvægt sé að umræðu sé ekki stýrt af annarlegum hvötum erlendra ríkja eða skipulögðum herferðum, hvort sem þær birtist í formi botta, gerviaðganga eða áhrifavalda á launum.
Greiningardeildin hafi þegar séð falska samfélagsmiðlaaðganga taka þátt í íslenskri umræðu undir tilbúnum nöfnum. „Það er þá allavega einhver að koma fram undir fölsku nafni, hvort sem það er Íslendingur eða ekki,“ segir Finnbogi. Það eitt dugi til að grafa undan trausti og gera umræðuna tortryggilegri, jafnvel án þess að hægt sé að rekja slíka aðila beint til erlendra ríkja.
Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist með þróuninni, vinnur með ráðuneytum og systurstofnunum á Norðurlöndum og tekur þátt í alþjóðlegu samtali um upplýsingaóreiðu, gervigreind og lýðræði. Finnbogi bendir á að Norðurlöndin hafi víða lagt mun meiri áherslu á vernd gegn áhrifum erlendra ríkja á opinbera umræðu, sérstaklega í kringum kosningar. Ísland standi „ágætlega, en ekki eins vel og hin Norðurlöndin“.
Hlutverk greiningardeildarinnar er meðal annars að aðstoða stjórnvöld við að tryggja að kosningar og umræða um stór pólitísk álitaefni, til dæmis hugsanlega ESB-aðild, sé lýðræðisleg og byggð á réttum upplýsingum. „Eitt af meginhlutverkum okkar er að tryggja lýðræðið,“ segir hann.
Í þessu landslagi skipta traustir fjölmiðlar miklu máli. Að mati Finnboga þurfi almenningur að hafa aðgang að miðlum sem hann treysti til að staðreyndaprófa og setja í samhengi það sem fólk sér á samfélagsmiðlum. Hann nefnir upplýsingafundi stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum sem dæmi um tilraun til að tryggja samræmt og traust upplýsingaflæði.
En ábyrgðin liggi líka hjá fjölmiðlunum sjálfum. „Það kostar tíma og peninga að sannreyna hluti,“ segir Finnbogi, og í harðri samkeppni sé ekki alltaf svigrúm til ítarlegrar staðreyndavöktunar. Samt sé það nauðsynlegt ef fjölmiðlar eigi að gegna hlutverki „fjórða valdsins“ og vera mótvægi við upplýsingaóreiðu en verði ekki óafvitandi að farvegi hennar.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli að við séum með nokkra fjölmiðla sem almenningur treystir,“ segir hann. Traust sé vandmeðfarið, en án þess verði baráttan við upplýsingaóreiðu og falsfréttir ójafn leikur og ógnin við lýðræðið því meiri.