Útgöngubann á Bretlandseyjum?

Kolbeinn Tumi Daðason: Með tilkomu gervigreindar hefur framleiðsla falsfrétta og misvísandi upplýsin…
Kolbeinn Tumi Daðason: Með tilkomu gervigreindar hefur framleiðsla falsfrétta og misvísandi upplýsinga margfaldast. Dag hvern birtast fyrir augum okkar á samfélagsmiðlum lygar eða villandi skilaboð. Ljósmynd: aðsend

Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri Sýnar, skrifar

Það er líklegt að mörgum notendum TikTok hafi brugðið seinni hluta síðasta árs þegar myndbönd af forsætisráðherra Breta óvænt kynna útgöngubann fóru í mikla dreifingu. Eðlilega enda er útgöngubann ekki eitthvað sem við eigum að venjast í vestrænum ríkjum, hvað þá svona upp úr þurru. Myndböndin voru mjög raunveruleg, sett fram í formi frétta en áttu ekki við rök að styðjast. Með nýlegri tækni virtist hann segja hluti sem hann í raun sagði aldrei.

Með tilkomu gervigreindar hefur framleiðsla falsfrétta og misvísandi upplýsinga margfaldast. Dag hvern birtast fyrir augum okkar á samfélagsmiðlum lygar eða villandi skilaboð. Stundum eru það stjórnvöld í ríkjum á borð við Rússland og Kína sem vilja villa um fyrir almenningi og skapa óróa. En svo er það líka fjárhagslegur hvati sem bætist við fyrir notendur ef myndbönd þeirra fá nógu mikla dreifingu á TikTok.

Vegna upplýsingaóreiðunnar þarf almenningur að rækta gagnrýna hugsun. Eitt af lykilatriðunum er að taka öllum upplýsingum sem þú sérð á óþekktum reikningum með fyrirvara. Þar gildir oft að ef eitthvað virkar of ótrúlegt til að vera satt þá er það líklega einmitt tilfellið. En meira að segja varasamasta og upplýstasta fólk getur fallið í gryfjuna.

Ritstýrðir fjölmiðlar voru lengi vel hliðverðir upplýsinga til almennings í lýðræðisríkjum heimsins. Það gjörbreyttist með tilkomu samfélagsmiðla þar sem hver maður, hvert fyrirtæki og hver stofnun hefur sína rödd, jafnvel undir nafnleynd. Magn upplýsinga sem flæðir yfir heiminn er gríðarlegt, bæði í formi sannra upplýsinga og falskra. Það hefur aldrei verið meira og eykst með degi hverjum. Það verður sífellt erfiðara að greina þar á milli.

Áskorun fyrir almenning og ritstýrða fjölmiðla

Fyrrnefnd fölsk myndbönd af Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, setja útgöngubann á landa sína voru á endanum fjarlægð af TikTok en skaðinn var löngu skeður. Bæði fyrir ráðherrann sem á í stökustu vandræðum við stjórnvölinn heima fyrir án þess að honum séu gerð upp ósannindi en ekki síst fyrir almenning sem veltir sér upp úr einhverju rugli og dreifir jafnvel áfram, oft með miklum upphrópunum og hneykslunartón. Því meiri hneykslun, því meiri reiði - því meiri dreifing vegna algóritma samfélagsmiðla.

Áskorunin er mikil fyrir almenning sem vill vera upplýstur en einnig ritstýrða fjölmiðla. Þeir eru ekkert annað en fólkið sem þar starfar sem getur alltaf gert hið mannlega, að gera mistök. Biðin eftir myndum af handsömun Maduro forseta Venesúela á dögunum reyndist of löng fyrir einn og einn erlendan fjölmiðil sem notuðu myndir af handsömuðum forseta sem voru í dreifingu. Myndirnar virkuðu mjög raunverulegar, forsetinn í haldi bandarískra lögreglumanna en þær voru falskar. Þær voru búnar til með gervigreind.

Stjórnvöld ólíkra landa hafa mismikinn áhuga á að berjast gegn upplýsingaóreiðu. Raunar eru sumir af valdamestu mönnum heimsins í fararbroddi þegar kemur að því að dreifa bulli og kalla raunverulegar staðreyndir falsfréttir. Lausnin er alls ekki í sjónmáli á meðan fyrirtækin sem halda úti gervigreindarforritunum og samfélagsmiðlunum taka ekki á vandanum. Þau koma ekki einu sinni í veg fyrir að hægt sé að afklæða börn eins og hefur sýnt sig að hægt er að gera með gervigreindartóli Elons Musk.