Who makes the news? Norræn ráðstefna um jafnrétti í fréttum

Mynd: Anton Brink
Mynd: Anton Brink

Ráðstefnan Who Makes the News? Nordic summit for gender equality in the news fer fram í Kaupmannahöfn 5. febrúar 2026. Þar verður sjónum beint að stöðu kynjajafnréttis í fréttamiðlum á Norðurlöndum, byggt á niðurstöðum Global Media Monitoring Project (GMMP) 2025. Blaðamannafélag Íslands er einn af stuðningsaðilum ráðstefnunnar en hún er haldin á vegum Háskóla Íslands í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir víðs vegar um Norðurlönd.

Á ráðstefnunni ræðir fræðafólk, blaðamenn, ritstjórar og stefnumótendur þróun síðustu ára, miðla vel heppnuðum verkefnum og efla samstarf um jafnrétti í fréttamiðlum. Viðburðurinn markar jafnframt 30 ár frá Beijing Platform for Action.

Meðal þeirra sem taka þátt frá Íslandi eru:

  • Valgerður Jóhannsdóttir, Háskóla Íslands, sem stýrir ráðstefnunni og flytur opnunarávarp

  • Finnborg Salome Steinþórsdóttir, Háskóla Íslands, sem fjallar um norræna þróun kynjajafnréttis í fréttum

  • Erla Björg Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Sýnar, sem tekur þátt í pallborðsumræðum með ritstjórum og blaðamönnum

  • Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands og Norræna blaðamannasambandsins (NJF), sem fjallar um samstöðu í jafnréttisbaráttunni

 

Hægt er að skrá sig til þátttöku á netinu og fylgjast með í streymi hér.

Frekari upplýsingar um dagskrá má nálgast hér.