Aðalfundur BÍ: forysta endurkjörin og jákvæð rekstrarniðurstaða

Mynd: Golli
Mynd: Golli

Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands fór fram þriðjudagskvöldið 21. apríl þar sem forysta félagsins var endurkjörin, lagabreytingar samþykktar og ársreikningar staðfestir. Rekstur félagsins var traustur á árinu og skiluðu allir sjóðir hagnaði.

Öflugir félagar kjörnir í stjórnir og nefndir

Sitjandi formaður félagsins, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, var ein í framboði til formanns og því sjálfkjörin til áframhaldandi starfa næstu tvö árin. Kosið var í stjórnir og nefndir samkvæmt tillögum kjörnefndar, sem voru samþykktar í heild. Ekki bárust önnur framboð á fundinum.

Hér er hægt er að kynna sér þau sem sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið næsta starfsár.

Lagabreytingar samþykktar

Tillögur stjórnar að breytingum á lögum félagsins voru lagðar fram á fundinum og hlutu allar brautargengi. Þá samþykkti aðalfundur að fela stjórn að útfæra og framkvæma eignatilfærslu þannig að orlofshús félagsins verði framvegis í eigu Orlofsheimilasjóðs, en ekki bæði Orlofsheimilasjóðs og Menningarsjóðs eins og áður.

Allir sjóðir skiluðu hagnaði

Ársreikningar félagsins og sjóða þess voru staðfestir samhljóða. Í skýrslu gjaldkera kom fram að rekstur félagsins hefði gengið vel á liðnu ári og að allir sjóðir skilað hagnaði. Þá varð viðsnúningur í Styrktarsjóði félagsins, sem skilaði hagnaði í fyrsta sinn í áratug.

Ályktun aðalfundar um stöðu blaðamennsku

Fundurinn samþykkti einnig ályktun um stöðu blaðamennsku á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Ályktunina má lesa í heild sinni hér.