Kjartan Ólafsson(1933-)

Kjartan fæddist 2. júní á Laugum í Súgandafirði. Hann varð stúdent frá Akureyri 1953. Í drögum að blaðamannatali frá árunum milli 1950 og 1960 kemur fram að Kjartan hefur  byrjað í blaðamennsku á Þjóðviljanum í ágúst 1950 og unnið þar í hálft ár samfleytt, en síðan öðru hvoru. Umsóknin um upptöku í Blaðamannfélag Íslands er dagsett 21. ágúst 1956, en hann segir þá aðalstarfa sinn vera nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands. Því er við að bæta að Kjartan stundaði síðan nám í germönskum fræðum í Vín 1956-1958, í heimspekideild Háskóla Íslands 1958-1960. Hann lauk BA-próf í þýsku og mannkynssögu frá HÍ 1961. Kjartan sat á þingi með hléum frá 1974-1985. Kjartan var ritstjóri Þjóðviljans í tvígang, á árunum 1972-1978 og aftur 1980-1983.