Siðavefur

Siðareglur eru gríðarlega mikilvægt verkfæri fyrir fagstétt blaðamanna og er einn þeirra megin þátta sem skilur fagstétt blaðamanna frá öðrum hópum sem skrifa/tala inn í almannarýmið. Siðareglur Blaðamannafélags Íslands eru að stofni til frá því um miðjan sjöunda áratuginn og hafa þróast samhliða aukinni fagvæðingu stéttarinnar. Siðareglum BÍ fylgir sérstök siðanefnd sem úrskurðar í kærumálum um hvort brotið hafi verið gegn reglunum og hefur siðanefndin sett sér ákveðnar starfsreglur. Mikilvægt er fyrir íslenska blaðamenn að hafa upplýsingar um hvernig íslensku reglurnar kallast á við alþjóðlegar reglur, en siðareglur fyrir blaðamenn eru mikilvægur hluti af sjálfseftirliti þeirra um allan heim. Hægt er að skoða þessi atriði nánar með því að smella á tenglana hér til hliðar.

Endurskoðun siðareglna hófst aftur á árinu 2021 og lauk með samþykkt nýrra siðareglna á aðalfundi BÍ 23. mars 2023. Nánar má kynna sér þær hér.