Bókun stjórnar Styrktarsjóðs BÍ

Eftirfarandi bókun var samþykkt á fundi stjórnar Styrktarsjóðs BÍ, þriðjudaginn 19. mars, með ósk um birtingu á vef félagsins:

Stjórn Styrktarsjóðs Blaðamannafélags Íslands vekur athygli á því og áréttar að í samræmi við reglugerð sjóðsins eiga þeir einir rétt á greiðslu úr sjóðnum sem greitt hafa í sjóðinn í að minnsta kosti síðastliðna 6 mánuði. Réttur til greiðslu úr sjóðnum fyrnist á 6 mánuðum eftir að greiðslum í sjóðinn er hætt.