Golli með mynd ársins

Mynd ársins 2023. Ljósmynd/Golli
Mynd ársins 2023. Ljósmynd/Golli

Kjartan Þorbjörnsson, Golli, hlaut í dag viðurkenningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands fyrir mynd ársins, fyrir mynd af Yazan, ungum flóttamanni frá Gaza. Veitt voru tvenn verðlaun og hlaut Kristinn Magnússon viðurkenningu fyrir fréttaljósmynd ársins, fyrir mynd frá samverustund Grindvíkinga í Hallgrímskirkju.

Á ljósmyndasýninguna Myndir ársins 2023 voru valdar 102 myndir frá 17 blaðaljósmyndurum af óháðri dómnefnd úr fjölda innsendra mynda. Á sýningunni eru myndirnar í sex flokkum sem eru fréttamyndir, myndir úr daglegu lífi, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir, og myndaraðir.

Í ár veitti dómnefndin verðlaun fyrir fréttamynd ársins og eina mynd úr fyrrnefndum flokkum var valin mynd ársins. Dómnefndarstörf fóru fram í byrjun febrúar en í ár skipuðu dómnefndina Árni Torfason, Hrund Þórsdóttir, Snorri Gunnarsson og Andrea Bruce sem var formaður dómnefndar. Andrea er stríðsfréttaljósmyndari frá Bandaríkjunum og hefur meðal annars unnið í Írak og Palestínu fyrir tímarit eins og The New York Times og National Geographic. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir myndir sínar.

Í umsögn dómnefndar um mynd ársins segir:

Mynd ársins 2023 er við fyrstu sýn einföld og kyrrlát. Hún er þó afar táknræn og hlaðin tilfinningu. Myndin sýnir Yazan, ungan flóttamann frá Gaza, þar sem hann skreytir tímabundið athvarf sitt hér á landi með jólaljósum og fána heimalands síns. Myndin kallar fram tilfinningar á borð við hryggð og samkennd og kemur vel til skila stolti hans yfir uppruna sínum og heimili, heimili sem nú er glatað. 

Í umsögn dómefndar um fréttaljósmynd ársins segir: 

Fréttamynd ársins sýnir hina hliðina á einu stærsta fréttamáli ársins, jarðhræringunum á Reykjanesi. Myndin er frá samverustund fyrir Grindvíkinga í Hallgrímskirkju. Við sáum margar stórkostlegar myndir frá sjálfum eldunum og eyðileggingunni sem hræringarnar höfðu í för með sér, en sigurmyndin fangar með eftirminnilegum hætti mannlegu hliðina, hvernig samfélagið varð þéttara og fólk sýndi hvert öðru stuðning á erfiðum tíma. 

Sýningin Blaðaljósmyndir ársins 2023 verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til 18. maí.  Hægt að nálgast bók með öllum myndum sýningarinnar í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur.