Heimir Már hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2023

Verðlaunahafar Blaðamannaverðlauna ársins 2023. Frá vinstri: Margrét Marteinsdóttir, Heimir Már Pétu…
Verðlaunahafar Blaðamannaverðlauna ársins 2023. Frá vinstri: Margrét Marteinsdóttir, Heimir Már Pétursson, Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Jóhannes Kr. Kristjánsson og Heimir Bjarnason. Á myndina vantar Sævar Guðmundsson. Ljósmynd/Anton Brink

Heimir Már Pétursson hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2023, Margrét Marteinsdóttir var verðlaunuð fyrir viðtal ársins, Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins og Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sævar Guðmundsson og Heimir Bjarnason fyrir umfjöllun ársins. Verðlaunin voru afhent á Kjarvalsstöðum í dag að viðstöddu margmenni. Hér má sjá rökstuðning dómnefndar fyrir valinu:

Viðtal ársins: 

Margrét Marteinsdóttir, Heimildinni. Fyrir viðtal við Gyrði Elíasson, rithöfund. Gyrðir hefur í gegnum tíðina forðast kastljós fjölmiðla en í viðtalinu ræðir hann í fyrsta sinn opinskátt um þunglyndi sem hann hefur glímt við í áratugi, og segir það vera vissan þráð í gegnum öll sín verk. Viðtalið er yndislestur og afar vel unnið, þar sem ljóðlist Gyrðis er meðal annars listilega fléttað inn í frásögnina. 

Rannsóknarblaðamennska ársins:

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Heimildinni. Fyrir fréttaskýringar um endurvinnsluferli drykkjarferna sem afhjúpaði að fernur, sem fjölmargir Íslendingar hafa flokkað jafnvel áratugum saman í þeirri trú að þær væru endurunnar, eru brenndar í sementsverksmiðjum á meginlandi Evrópu. Umfjöllun og rannsókn Bjartmars var umfangsmikil og teygði sig til margra landa og hafði margvísleg áhrif, meðal annars þær að breytingar urðu á stjórnendateymi Úrvinnslusjóðs og nýtt verklag var innleitt við endurvinnslu á drykkjarfernum. 

Umfjöllun ársins: 

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sævar Guðmundsson og Heimir Bjarnason, Reykjavík Media og Purkur kvikmyndagerð, fyrir umfjöllun ársins. Fyrir sjónvarpsþættina Stormur sem fjölluðu um Covid 19-faraldurinn á Íslandi frá hliðum sem ekki höfðu sést áður í fjölmiðlum hér á landi. Mannlegar hliðar faraldursins voru í forgrunni í þáttunum með áhrifamiklum sögum af því hvernig almenningur tókst á við sjúkdóminn og hraða útbreiðslu hans, sem og sögum af þeim sem stóðu í framlínu baráttunnar fjarri ættingjum sínum. 

Blaðamannaverðlaun ársins:

Heimir Már Pétursson, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir ítarlega og vandaða umfjöllun um kjaramál á árinu, sem kristallaðist í viðtali við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson, þáverandi framkvæmdastjóra SA. Deilan var þá komin á algjöran hnút en Heimir Már fékk þau saman í ítarlegt viðtal í beinni útsendingu þar sem þau féllust á að fresta verkföllum og verkbanni ef ný miðlunartillaga yrði lögð fram.