Reglugerð

1. gr. Nafn sjóðsins

1. Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður BÍ

2. Sjóðurinn er eign Blaðamannafélags Íslands (hér eftir BÍ). Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

2.gr. Verkefni sjóðsins

1. Verkefni Styrktarsjóðs BÍ eru eftirfarandi:


1. Að greiða félagsmönnum BÍ dagpeninga eða veita þeim fjárhagsaðstoð með öðrum hætti verði þeir óvinnufærir vegna veikinda eða slysa, enda hafi launatekjur þeirra fallið niður.

2. Að greiða félagsmönnum BÍ dagpeninga eða veita þeim fjárhagsaðstoð með öðrum hætti vegna langvarandi veikinda maka og barna, enda hafi sjóðfélagi misst launatekjur vegna þeirra.

3. Að greiða félagsmönnum BÍ styrk vegna áfengismeðferðar eða annarrar meðferðar sem leggja má að jöfnu, enda hafi launatekjur fallið niður.

4. Að greiða félagsmönnum BÍ styrk vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds og meðferðar hjá kírópraktorum (hnykkjum) sem Tryggingastofnun ríkisins tekur þátt í að greiða eða nýtur opinbers stuðnings með öðrum hætti.

5. Að greiða félagsmönnum BÍ styrk vegna krabbameinsskoðunar og hjartaskoðunar.

6. Að greiða félagsmönnum BÍ, sem þurfa á sérstökum hjálpartækjum að halda vegna sjúkdóms eða fötlunar til að geta sinnt starfi sínu, styrk til kaupa á slíkum tækjum.

7. Að greiða mökum eða börnum félagsmanna BÍ útfararstyrki vegna fráfalls félagsmanns.

8. Að greiða læknisvottorð sem nauðsynleg eru vegna umsókna úr Styrktarsjóði BÍ.

9. Að greiða félagsmönnum BÍ styrk vegna þátttöku í heilsueflingu.

10. Að greiða félagsmönnum fæðingarstyrk í fæðingarorlofi.

2. Réttur til greiðslu úr sjóðnum fyrnist á sex mánuðum.

3. Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um greiðslur úr sjóðnum. Í þeim skal m.a. kveðið á um hversu lengi greiðslur vari, hvort greiðslur hefjist að tilteknum tíma liðnum frá því að launagreiðslur féllu niður, hversu háar greiðslur séu í hverju einstöku tilviki og hvernig umsóknum um greiðslur úr sjóðnum skuli háttað. Greiðslur skv. lið 2.1.8. skulu þó nema að fullu þeim kostnaði sem þar um ræðir.

4. Reglur um greiðslur úr sjóðnum skulu endurskoðaðar árlega með hliðsjón af fjárhagsstöðu sjóðsins. Hafi fjárhagsstaða sjóðsins rýrnað verulega að mati stjórnar hans skulu réttindi til greiðslu úr sjóðnum skert, en aukin hafi fjárhagsstaðan batnað verulega.

5. Sjóðnum er heimilt að kaupa vátryggingu er komi að einhverju eða öllu leyti í stað greisluskyldu sjóðsins skv. 1. mgr.

3. gr. Réttur til styrkja

1. Rétt til styrkja úr sjóðnum eiga:

1. Fullgildir félagsmenn BÍ skv. lögum félagsins.

2. Atvinnulausir félagsmenn BÍ skv. nánari ákvörðun stjórnar BÍ.

2. Þeir, sem greitt hefur verið fyrir í Styrktarsjóð BÍ í a.m.k. sex mánuði, eiga rétt á greiðslu í hlutfalli við vinnuframlag viðkomandi. Stytta má þennan tíma hafi umsækjandi áður verið fullgildur félagi í BÍ.

3. Styrkveitingar geta hafist frá þeim tíma er samningsbundnum launagreiðslum lýkur. Nánar skal kveðið á um þetta í starfsreglum sjóðsins.

4. Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skilað í því formi sem sjóðstjórn ákveður ásamt nauðsynlegum vottorðum er tryggja réttmæti greiðslna.

5. Ef farsóttir geisa getur sjóðstjórn leyst sjóðinn frá greiðsluskyldum sínum um stundarsakir. Einnig getur sjóðstjórn ákveðið að lækka um stundarsakir dagpeninga ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin.

4. gr. Stjórn og rekstur

1. Fulltrúar BÍ í stjórn sjóðsins skulu vera þrír og skulu kosnir árlega á aðalfundi BÍ. Einnig skal kjósa varamenn fyrir hvern þeirra. Stjórn sjóðsins skiptir með sér verkum.

2. Stjórn sjóðsins fer með framkvæmdavald í málefnum hans milli aðalfunda.

3. Sjóðurinn hefur sjálfstæðan fjárhag og skal honum haldið aðgreindum frá fjárhag BÍ og fjárhag annarra sjóða í eigu eða á vegum BÍ.

4. Sjóðurinn greiðir allan kostnað sem af rekstri hans leiðir.

5. Daglegur rekstur sjóðsins skal vera á skrifstofu BÍ.

5. gr. Tekjur og ávöxtun eigna

1. Tekjur sjóðsins eru:

a. Samningsbundnar greiðslur atvinnurekenda eins og þær eru ákveðnar í kjarasamningi blaðamanna á hverjum tíma.

b. Vaxtatekjur og aðrar fjármagnstekjur.

2. Eignir sjóðsins skulu varðveittar í traustum verðbréfum og bankainnstæðum. Sjóðnum er óheimilt að kaupa fasteignir og taka eða veita lán.

3. Stjórn sjóðsins er heimilt að fela utanaðkomandi aðila ávöxtun hans.

6. gr. Ársreikningur og endurskoðun

1. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður af skoðunarmönnum BÍ og löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. Hann skal lagður fram samhliða reikningum BÍ og jafnframt sendur samninganefnd atvinnurekenda.

7. gr. Slit sjóðsins

1. Nú er BÍ lagt niður án þess að annað sameiginlegt félag blaðamanna komi í þess stað og skal sjóðnum þá slitið. Eignir sjóðsins skulu þá renna til fullgildra félagsmanna í réttu hlutfalli við fjölda þeirra.

2. Einstaklingar sem segja sig úr BÍ eiga ekki tilkall til eigna sjóðsins.

8. gr. Breytingar á reglugerðinni

1. Breytingar á reglugerð þessari öðlast ekki gildi nema þær hafi verið samþykktar á aðalfundi BÍ og af samninganefnd atvinnurekenda. Um atkvæðagreiðslu um breytingar á reglugerðinni á aðalfundi BÍ gilda sömu reglur og um lagabreytingar.

9. gr. Nánari starfsreglur

1. Sjóðstjórn setur nánari starfsreglur skv. reglugerð þessari, sem samþykktar skulu af stjórn BÍ.

10. gr. Gildistaka

1.Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

(Samþykkt á aðalfundi BÍ 25. apríl 2001).