Bjarni Jónsson frá Vogi (1863-1926)

Bjarni fæddist í Miðmörk undir Eyjafjöllum. Hann lauk stúdentspróf frá Lærða skólanum og cand.mag.-prófi  í þýsku og klassískum málum frá Hafnarháskóla 1894, en dvaldist að því loknu um hríð í Þýskalandi. Hann stundaði kennslu, var baráttuglaður stjórnmálamaður og ritstjóri fjölda blaða og tímarita um skeið á árunum 1903-1924.