Guðmundur Karlsson(1919-1979)

 Guðmundur fæddist í Reykjavík 31. ágúst. Foreldrar hans voru Karl Óskar Bjarnason varaslökkviliðsstjóri og Kristín Lovísa Sigurðardóttir, alþingismaður, en hún var dóttir Sigurðar Þórólfssonar, sem í eina tíð ritstýrði Dagskrá Einars Benediktssonar um skamman tíma. Guðmundur lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur 1935. Hann starfaði síðan sem brunavörður í Reykjavík frá 1943-1956, en sneri sér þá að blaðamennsku um nokkurra ára skeið, fyrst á Vísi en síðan á Vikunni. Eftir það fékkst hann við verslunarstörf. Eftir Guðmund liggur bókin Í björtu báli, sem fjallar um Reykjavíkurbrunann mikla 1915.