Alþjóðlegi netöryggisdagurinn

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Réttindi og ábyrgð á netinu ” og munu yfir 70 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.

Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe samstarfsnetið, og nærri 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ýmsa hagsmunaðila til þess að vekja athygli á og ræða netið. Samstarfsnetið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu og sýnd í sjónvarpi næstu daga.

Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmála, Póst- og fjarskiptastofnun, Símann, Lenovo, Microsoft Íslandi og Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Hafþór Freyr Líndal, ungmennaráði SAFT.

Dagskrá:

13.00 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið og veitir verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á netinu

13.15 Málstofa 1 – stofa H207 - Skólinn, uppeldi og samfélagsmiðlar

• Hver er draumaskólinn?
• Tölvu- og töflumenning
• Bætt upplýsingalæsi aukin meðvitund um netöryggi í grunnskólum landsins
• Tölvur í leikskólum, til hvers?
• Einelti
• Fjárhættuspila
• Klám á netinu
• Birtingamynd kynjanna
• Netið og sjálfsmynd
• Ábyrgð foreldra
• Félagsleg virkni og samskipti
• Internetið er komið til að vera
• Kommentakerfi fjölmiðla

13.15 Málstofa 2 – stofa H205 - Tækni, öryggi og lög

• Áhrif snjalltækja á samskipti
• Opinn hugbúnaður og apps
• Auðkenning á netinu
• Tölvuský
• Forvarnir og fræðsla um netvarnir
• Ábendingahnappur
• Niðurhal og PEGI
• Frumvarp um landslénið .is
• IGF – umræðuvettvangur um skipulag og þróun internetsins
• Réttindi og skyldur á netinu
• Almenn hegningarlög og úrræði við ólögmætu efni á netinu
• Netsíun

16.00 Veitingar

Málþingið verður sent beint út á Netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á saft@saft.is eða hér á Facebook síðu SAFT, en þingið er öllum opið án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir.