BÍ: Skæruverkföll skoðuð

Hjálmar Jónsson, formaður BÍ
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ

Lítið miðar í samningaviðræðum Blaðamannafélagsins og SA og í Morgunblaðinu í morgun segir Hjálmar Jónsson formaður BÍ að nú sé unnið að því að útfæra aðgerðir til að þrýsta á um kröfur félagsins.  Hann staðfestir þar að í aðgerðaráætlun félagsins felist hugsanlegt verkfall til að hafa hámarks áhrif, og að horft sé til skæruverkfalla í því skyni.

Hjálmar segist þó enn vona að ekki þurfi að koma til aðgerða, en blaðamenn muni og þurfi að fylgja eftir kröfum sínum.