Blaðamannaverðlaun: Tilnefningafrestur til 4. febrúar

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 19. skipti föstudaginn 1. apríl næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 4. febrúar næstkomandi.

Eins og undanfarin ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

  •  Besta umfjöllun ársins 2021
  •  Viðtal ársins 2021
  •  Rannsóknarblaðamennska ársins 2021
  •  Blaðamannaverðlaun ársins 2021

Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is