Fréttablaðið fær mest af auglýsingafé ríkisins

Í áhugaverðri úttekt Brynjólfs Þórs Guðmundssonar á fréttavef  Ríkisútvarpsins kemur fram að ráðuneyti, ríkisstofnanir og fyrirtæki á vegum hins opinbera borguðu tæpar 190 milljónir króna fyrir birtingu auglýsinga fyrstu tíu mánuði ársins. Stærsta sneiðin af auglýsingaköku ríkisins fékk útgáfufélag Fréttablaðsins eða 37 milljónir og næst á eftir kom Morgunblaðið með 16 milljónum minna en Fréttablaðið eða 21 milljón króna. Úttekt sína byggir Brynjólfur á upplýsingum úr vefgáttinni Opnir reikningar.

Sjá umfjöllun Brynjólfs hér