Hvít skýrsla IFJ: 2.658 blaðamenn drepnir á 30 árum

Í tilefni af  alþjóðlegum degi mannréttinda, sem er í dag, 10. desember, hefur Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) birt  Hvíta skýrslu (White paper) um stöðu blaðamennsku í heiminum. Skýrslan  fjallar um stöðu tjáningarfrelsis í heiminum, aðstæður blaðamanna til að sinna störfum sínum, blaðamennsku, kynja jafnrétti, siðamál, Covid og fleira.  Meðal þess sem þarna kemur fram er að á síðustu 30 árum hafa 2.658 blaðamenn verið drepnir við vinnu sína, þar af 42 á þessu ári. Í dag eru um 235 blaðamenn í fangelsi vegna starfa sinna.

Hér má sjá skýrsluna í heild.