Málþing: Eru fjölmiðlastyrkir forsenda fjölbreyttrar og sjálfstæðrar fjölmiðlunar?

FYLGSTU MEÐ Í STREYMI HÉR

Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti við Háskóla Íslands og Blaðamannafélag Íslands í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boða til málþings um opinbera styrki til einkarekinna fjölmiðla mánudaginn 7. febrúar kl. 17-19 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23 og í streymi.

Opinberar styrkveitingar til einkarekinna fjölmiðla hófust árið 2020 en fyrirkomulag fjölmiðlastyrkja er frábrugðið því sem viðgengst hjá hinum Norðurlöndunum en jafnan er lögð áhersla á að slíkur stuðningur stuðli að fjölbreytni miðla og sjálfstæði. Gestafyrirlesari málþingsins er Ida Willig, prófessor í fjölmiðlafræðum við Hróarskelduháskóla, en hún kom að smíði dönsku reglanna um styrki til einkarekinna fjölmiðla þar í landi.

Dagskrá:

Opnunarávarp: Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands

Ávarp flytur:  Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra

Erindi:
Ida Willig, prófessor í fjölmiðlafræðum Hróarskelduháskóla, fjallar um fjölmiðlastyrki í Danmörku
Valgerður A. Jóhansdóttir, lektor og umsjónarmaður með meistarnámi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, greinir frá niðurstöðum úr könnun á meðal íslenskra blaða- og fréttamanna til starfsins.

Þátttakendur í pallborðsumræðum:
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
Þórhallur Gunnarsson, framkæmdastjóri hjá Sýn
Valgerður A. Jóhannsdóttir, lektor og umsjónarmaður með meistarnámi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er umræðustjóri

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Málþinginu verður einnig streymt á vef Blaðamannafélagsins, press.is

 Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti og Blaðamannafélag Íslands.