Myndir ársins

Glódís Tara, Nína Rún Bergsdóttir, Anna Katrín Snorradóttir og Halla Ólöf Jónsdóttir, fó…
Glódís Tara, Nína Rún Bergsdóttir, Anna Katrín Snorradóttir og Halla Ólöf Jónsdóttir, fórnarlömb Róberts Downeys, fá sér allar sams konar húðflúr. Mynd: Stefán Pálsson

Í dag  opnaði árleg sýning íslenskra blaðaljósmyndara í Esju, austurhluta Hörpu og við opnunina voru nokkrum ljósmyndurum veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2017. Veitt voru verðlaun í 7 flokkum auk bestu myndar ársins. Mynd ársins 2017 tók Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og er það mynd af Nínu Rún Bergsdóttur sem situr í stól húðflúrara sem er að flúra „I am the storm“ á öxl Nínu. Hún er þar ásamt konum sem allar fengu sér sama húðflúrið og höfðu allar orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu sama manns. Myndin er á margan hátt táknræn fyrir árið 2017 því reynsla þeirra kom af stað hreyfingu sem fékk heitið „Höfum hátt“.

Aðrir ljósmyndarar sem voru verðlaunaðir voru Eyþór Árnason sem átti bestu mynd í fréttaflokki, Heiða Helgadóttir sem átti myndröð ársins og portrait ársins, Kristinn Magnússon sem átti bestu íþróttamynd ársins, Hörður Sveinsson sem tók bestu umhverfismynd ársins, Heiðdís G. Gunnarsdóttir sem fangaði bestu mynd í flokki daglegs lífs og Aldís Pálsdóttir sem tók tímaritamynd ársins 2017.

Sjö dómarar völdu 105 myndir á sýninguna í ár úr 732 innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara. Þeir völdu þar að auki sigurmynd í hverjum flokki og mynd ársins. Dómnefndina í ár skipuðu Auðunn Níelsson, Helga Laufey Guðmundsdóttir, Gígja Einarsdóttir, Gunnar Sverrisson, Valdimar Thorlacius, Þórdís Erla Ágústsdóttir og sænski fréttalójsmyndarinn Paul Hansen sem jafnframt var formaður dómnefndar.

Sjá enn fremur hér