Myndir ársins 2018: Verðlaunaafhending og opnun

Verðlaunahafar í Smáralind í dag.
Verðlaunahafar í Smáralind í dag.

Árleg sýn­ing ís­lenskra blaðaljós­mynd­ara var opnuð dag í Smáralind og samhiða voru ljós­mynd­ur­um veitt verðlaun fyr­ir bestu mynd­ir árs­ins 2018. Veitt voru verðlaun í 7 flokk­um auk bestu mynd­ar árs­ins.

Mynd árs­ins 2018 tók Heiða Helga­dótt­ir, ljós­mynd­ari Stund­ar­inn­ar, og er það mynd af Adrí­an Valentín, ein­hverf­um dreng sem sit­ur í strætó og fylg­ist með um­hverf­inu. Mynd­in er hluti af myndaseríu sem val­in var myndasería árs­ins og fjall­ar um tví­bura­bræðurna Adam Ei­líf og Adrí­an Valentín sem eru nýorðnir ell­efu ára.

Aðrir ljós­mynd­ar­ar sem voru verðlaunaðir voru Har­ald­ur Jónas­son sem átti bestu mynd í frétta­flokki, Heiða Helga­dótt­ir sem átti myndaröð árs­ins og portrait árs­ins, Sig­trygg­ur Ari Jó­hanns­son sem átti bestu íþrótta­mynd árs­ins, Eyþór Árna­son sem tók bestu um­hverf­is­mynd árs­ins, Al­dís Páls­dótt­ir sem fangaði bestu mynd í flokki dag­legs lífs og Hall­ur Karls­son sem tók tíma­rita­mynd árs­ins 2018.

Sjö dóm­ar­ar völdu 106 mynd­ir á sýn­ing­una í ár úr 840 inn­send­um mynd­um ís­lenskra blaðaljós­mynd­ara. Þeir völdu þar að auki sig­ur­mynd í hverj­um flokki og mynd árs­ins. Dóm­nefnd­ina í ár skipuðu þau Bára Krist­ins­dótt­ir, Brynj­ar Gauti Sveins­son, Jó­hanna Guðrún Árna­dótt­ir, Jón Guðmunds­son, Pét­ur Thomsen, Þorkell Þorkels­son og Mads Greve kenn­ari við Dmjx sem jafn­framt var formaður dóm­nefnd­ar, að því er seg­ir í til­kynn­ingu.

Sýn­ing­in stend­ur til 4. apríl í Smáralind