Myndir ársins - skilafrestur er til 5. febrúar

Fréttamynd ársins 2022. Ljósmyndari: Heiða Helgadóttir.
Fréttamynd ársins 2022. Ljósmyndari: Heiða Helgadóttir.

Blaðaljósmyndarafélag Íslands auglýsir eftir bestu myndum nýliðins árs í samkeppnina Myndir ársins. Skilafrestur til að skila inn myndum í Myndir ársins 2024 er 5. febrúar næstkomandi. Flokkum hefur verið breytt og þau sem vilja senda inn myndir eru hvött til að kynna sér þær breytingar. 

Blaðaljósmyndarafélag Íslands minnir á skil í „Myndir ársins 2024“. Skilafrestur mynda er til kl. 24:00, mánudaginn 5. febrúar 2024.

Athygli er vakin á að flokkum hefur verið breytt aðeins svo við við hvetjum alla til að kynna sér það á vefnum www.myndirarsins.com 

Myndum er t.d. hægt að skila með því að:

  • Gefa blimyndir@gmail.com aðgang að Dropbox möppu.
  • Þjappa skjal sem inniheldur myndirnar og senda sem dropbox-link.
  • Þjappa skjal sem inniheldur myndirnar og senda í gegnum Wetransfer á blimyndir@gmail.com
  • Notast við eitthvað sambærilegt og hér er talið upp að ofan. 

Lög félagsins og skilareglur eru á www.myndirarsins.com og hvetjum við alla til að kynna sér þær gaumgæfilega.

Ef einhver er í vandræðum með þetta þá endilega sendið fyrirspurnir á póstfangið blimyndir@gmail.com

Allir fá staðfestingarpóst þegar myndir hafa verið mótteknar.

Af gefnu tilefni viljum við minna á að allir sem senda inn myndir eiga að setja inn heiti mynda og stuttan myndatexta við allar innsendar myndir eins og lýst er í skilaleiðbeiningum.

Að lokum viljum við hvetja ykkur öll til að taka þátt og senda ykkar bestu myndir frá nýliðnu ári.

Kveðja,
Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands