Tilnefningar dómnefndar til Blaðamannaverðlauna

Dómnefnd Blaðamannaverðlauna BÍ hefur tilkynnt um tilnefningar sínar til allra fjögurra flokka verðlaunanna. Eftir viku verður síðan tilkynnt um hverjir úr hópi tilnefndra hljóta verðlaunin.  Tilnefningarnar eru eftirfarandi:

 

Umfjöllun ársins

Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson, RÚV.  Fyrir fjölbreytta, aðgengilega og upplýsandi umfjöllun af erlendum vettvangi sem vakið hefur athygli í þáttunum Heimskviðum.

Erla Björg Gunnarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir áhrifamikla og afhjúpandi umfjöllun Kompáss um dulinn vanda kvenna með þroskahömlun sem leiðst hafa út í vændi.

Sunna Ósk Logadóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær Júlíusson, Arnar Þór Ingólfsson og Jónas Atli Gunnarsson, Kjarnanum.  Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun um eldsvoðann á Bræðraborgarstíg 1 og margháttaðar afleiðingar hans.

 

Viðtal ársins

Erla HlynsdóttirDV.  Fyrir áhrifamikið viðtal við Elísabetu Ronaldsdóttur þar sem lýst er alvarlegu ofbeldi í nánu sambandi.

Hlédís Maren GuðmundsdóttirStundinni. Fyrir viðtal við fjórar ungar íslenskar konur sem eiga rætur að rekja til Asíu og lýsa kynferðislegum kynþáttafordómum í sinn garð allt frá grunnskólaaldri. 

Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu. Fyrir viðtal við Ingva Hrafn Jónsson þar sem hann ræðir um andlát bróður síns og þá ákvörðun hans að þiggja dánaraðstoð.

 

Rannsóknarblaðamennska ársins

Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan og Stefán Drengsson, RÚV. Fyrir fréttaskýringarþátt um afdrif tveggja gámaflutningaskipa sem Eimskip seldi í gegnum millilið til niðurrifs í Indlandi þvert á evrópsk lög.

Freyr Rögnvaldsson og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Stundinni.  Fyrir fréttaflutning um plastmengun í Krýsuvík vegna moltudreifingar umhverfisfyrirtækisins Terra sem Samtök atvinnulífsins valdi umhverfisfyrirtæki ársins 2020. 

Nadine Guðrún Yaghi, Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir að afhjúpa umfangsmikil og afdrifarík mistök sem gerð voru við greiningar á leghálssýnum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. 

 

Blaðamannaverðlaun ársins

Hólmfríður Dagný FriðjónsdóttirRÚV.  Fyrir umfjöllun um atvinnuleysi þar sem tekið var á sálrænum, félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum þess í skugga heimsfaraldurs COVID-19. 

Sunna Karen Sigurþórsdóttir, Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og BylgjunnarFyrir yfirgripsmiklar og áhrifaríkar fréttir sem fluttar voru beint af vettvangi af aurskriðunum á Seyðisfirði og afleiðingum þeirra. 

Þórhildur ÞorkelsdóttirRÚV. Fyrir vönduð fréttatengd viðtöl þar sem sjónum er beint að einstaklingum í erfiðum aðstæðum.