Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2017

Dómnefnd Blaðamannaverðlauna BÍ hefur kynnt tilnefningar sínar til Blaðamannaverðlauna. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum en dómnefnd gerir þrjár tilnefningar í hverjum flokki og á laugardag eftir viku verður tilkynnt hverjir hreppa verðlaunin í hverjum flokki. Tilnefningar dómnefndar eru eftirfarandi:

Viðtal ársins
Jóhann Páll Jóhannsson, Stundinni
Fyrir áhrifamikið viðtal við Sigurlaugu Hreinsdóttur, móður Birnu Brjánsdóttur, þar sem hún segir frá lífshlaupi dóttur sinnar, missinum, sorginni og viðbrögðum samfélagsins.

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu
Fyrir einlægt viðtal við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur þar sem hún lýsir aðkomu og eftirköstum þess að eiginmaður hennar, Sigursteinn Gunnarsson, svipti sig lífi árið 1997.

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV
Fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi? Einstök og falleg innsýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálfbróður og hittir í fyrsta sinn.

 

Rannsóknarblaðamennska ársins
Alma Ómarsdóttir, RÚV.
Fyrir upplýsandi og heildstæða umfjöllun um hverjir hlutu uppreist æru, hverjir væru meðmælendur þeirra og áhrif uppreistarinnar á brotaþola.

Hörður Ægisson, Fréttablaðinu
Fyrir greinargóða umfjöllun um viðskipti með hlutafé í Arion banka, ekki síst áhrif kaupa þriggja vogunarsjóða í bankanum.

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Jóhann Páll Jóhannsson og Jóhannes Kr. Kristjánsson, Stundinni.
Fyrir afhjúpandi umfjöllun um viðskipti Bjarna Benediktssonar og fjölskyldu hans og náin tengsl við Glitni í aðdraganda bankahruns.

 

Umfjöllun ársins
Jóhann Bjarni Kolbeinsson, RÚV
Fyrir greinargóða umfjöllun um átakanlegar aðstæður þeirra barna sem bjuggu á Kópavogshælinu á árunum 1952-1993, vanrækslu þeirra og ofbeldi sem þau voru beitt. 

Kjartan Hreinn Njálsson, Stöð 2/365
Fyrir nýstárlega umfjöllun um CRISPR/Cas9-erfðatæknina og hvernig íslenskir vísindamenn beita henni til að þróa ný lyf og hvaða siðferðilegar spurningar tæknin vekur.

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu.
Fyrir að reifa skilmerkilega hvernig raforkuþurrð til náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjónarmið þar um.

 

Blaðamannaverðlaun
Magnús Halldórsson, Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir, Kjarnanum.
Fyrir greinargóða umfjöllun um tillögur dómsmálaráðherra til Alþingis um skipan í stöður dómara við hið nýja dómsstig Landsrétt.

Ritstjórn, Stundinni.
Fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kynferðisbrotamanna, áhrif þess á fórnarlömb mannanna og tregðu stjórnvalda til upplýsingagjafar.

Sigríður Hagalín, RÚV.
Fyrir upplýsandi umfjöllun um konur sem fengu mótmælendur fyrir utan heimili sín í kjölfar hrunsins og mismunandi viðhorf mótmælenda þegar þeir litu til baka.