Tímabær endurskoðun siðareglna

Titill greinarinnar í Blaðamanninum 1.tbl. 44.árg. desember 2022.
Titill greinarinnar í Blaðamanninum 1.tbl. 44.árg. desember 2022.

Grein eftir Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann BÍ, birt í Blaðamanninum 1/2022. 

Undanfarið ár hefur vinnuhópur unnið að endurskoðun siðareglna BÍ. Tillögur hópsins að nýjum siðareglum eru nú lagðar fram til kynningar og umræðu. Núgildandi siðareglur BÍ tóku gildi árið 1991 og hafa því verið óbreyttar í rúm þrjátíu ár. Þær hafa í raun lítið breyst frá því þær voru fyrst samþykktar árið 1965, en Friðrik Þór Guðmundsson fer ítarlega yfir sögu siðareglna og afstöðu blaðamanna til þeirra í grein hér í blaðinu. Í stuttu máli má segja að árangurslausar atlögur hafi verið gerðar að breytingum á siðareglunum frá 2005 enda gætti verulegrar óánægju innan stéttarinnar með tiltekin ákvæði þeirra. Gagnrýnin laut almennt að því að reglurnar væru ekki nægilega skýrar og vel upp settar og ákvæði þóttu huglæg og matskennd – afstæð – svo sem ákvæði um tillitsemi.

Samhljómur meðal blaðamanna um áherslur

Fljótlega eftir að nýr formaður tók við vorið 2021 hófst umræða á ný um nauðsyn þess að endurskoða siðareglurnar. Haustið 2021 auglýsti formaður eftir áhugasömum í vinnuhóp um endurskoðun siðareglna sem kom fyrst saman í nóvember 2021 og hefur hist um átta sinnum síðan. Starfandi blaðamenn, félagsmenn í BÍ, voru boðnir velkomnir að starfa með hópnum. Það voru um 10-12 manns sem komu að starfi hópsins. Friðrik Þór Guðmundsson sérfræðingur var ráðgjafi hópsins. Hann kynnti á fyrsta fundi niðurstöður úr skoðanakönnun meðal blaðamanna um siðareglur sem meðal annars sýndu fram á vilja meirihluta blaðamanna í þá veru að vert væri að einfalda og skýra reglurnar, eins og nánar er skýrt frá hér í þessu tölublaði. Var það leiðarljós vinnu hópsins.

Þörf á að skerpa á hugtökum, gildum og vinnubrögðum

Við endurskoðunina var horft til núgildandi siðareglna – en einnig til siðareglna Alþjóðasambands blaðamanna (IFJ), auk siðareglna í löndunum í kringum okkur, svo sem hinna Norðurlandanna, Bretlands, Belgíu og fleiri landa. Þá var horft til breytt umhverfis fjölmiðla og breyttrar stöðu blaðamanna með nýjum miðlunarleiðum. Þá hefur umræða um upplýsingaóreiðu og falsfréttir skapað þörf á að skerpa á ákveðnum hugtökum, gildum og vinnubrögðum til þess að auðvelda blaðamönnum og almenningi að gera greinarmun á faglegri blaðamennsku og annarri miðlun hvers kyns upplýsinga.

Kallað eftir athugasemdum og umræðu

Siðareglur þessar eru hér kynntar í fyrsta skipti opinberlega, þótt allir félagsmenn hafi haft möguleika á að kynna sér þær í öllu ferlinu með þátttöku í fundum hópsins. Um er að ræða tillögu að breytingum sem hópurinn vonast til að geti skapast góð og málefnaleg umræða um og í framhaldinu góð sátt. Við hvetjum ykkur öll til þess að kynna ykkur tillögurnar vandlega því siðareglur BÍ eru leiðarvísir sem blaðamenn styðjast daglega við í sinni vinnu og rammar inn þau faglegu gildi og reglur sem stéttin starfar samkvæmt.

Blaðamannafélag Íslands hefur stofnað sérstakt netfang þar sem tekið er á móti athugasemdum: sidareglur@ press.is. Einnig hefur verið sett upp athugasemdakerfi á press.is (https:// www.press.is/is/faglegt/sidavefur/ endurskodun-sidareglna) þar sem koma má á framfæri ábendingum. Þá mun félagið ennfremur halda kynningarog umræðufund um þessar tillögur í janúarmánuði 2023. Um nýjar siðareglur verður síðan kosið á næsta aðalfundi, sem haldinn verður í apríl. Hér til hliðar birtast núgildandi siðareglur og tillögurnar að nýjum siðareglum til samanburðar. Hér að neðan eru útskýringar vinnuhópsins um hverja grein tillagnanna sem ætlað er að setja í samhengi þær breytingar sem lagðar eru til og að vera innlegg í faglega umræðu um þessar tillögur.

Til viðbótar siðareglum munum við einnig vinna leiðbeiningar um góða starfshætti í viðkvæmum málefnum, sem verða vistaðar á press.is. 

Siðareglutillögur2022

Siðareglutillögur2022_2+