Tjáningarfrelsi og vernd afhjúpenda

Hinn virti þýski fræðimaður, Thomas Horen verður meðal frummælenda
Hinn virti þýski fræðimaður, Thomas Horen verður meðal frummælenda

Áhugavert málþing sem ber yfirskriftina “Tjáningarfrelsi og vernd afhjúpenda” verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins nk. þriðjudag, 22. janúar milli kl 13:00-16:30. Það er mennta- og menningarmálaráðuneytið og stýrihópur um framkvæmd þingsályktunar um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis sem standa fyrir málþinginu.

Það var þann 16. júní 2010 sem Alþingi samþykkti þingsályktun þess efnis að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Í greinargerð með þingsályktunartillögunni er talið að leita verði leiða til að styrkja tjáningarfrelsi, málfrelsi, upplýsingamiðlun og útgáfufrelsi auk þess sem vernd heimildarmanna og afhjúpenda verði tryggð. Það var mat flutningsmanna tillögunnar að nauðsynlegt væri gera tilteknar lagabreytingar til að hrinda efni hennar í framkvæmd, þ.á m. um vernd afhjúpenda en fyrirmynd að slíkri löggjöf er að finna í ýmsum nágrannaríkjum Íslands. Með slíkri vernd er reynt að vernda réttarstöðu afhjúpenda, hvort heldur hjá hinu opinbera eða í einkageiranum, þegar þeir hafa upplýsingar sem eiga erindi til alls almennings.

Þann 3. maí 2012 skipaði mennta- og menningarmálaráðherra stýrihóp og er honum ætlað að leiða vinnu ráðuneytisins við greiningu og úttekt á lagaumhverfinu hér á landi og erlendis með tilliti til efnis þingsályktunarinnar og með hliðsjón af þjóðréttarskuldbindingum Íslands.

Með málþinginu verður leitast við að varpa ljósi á þær tillögur sem lagðar eru fram í þingsályktuninni. Jafnframt munu frummælendur fjalla um ólík málefni tengd tjáningarfrelsi og vernd afhjúpenda og hvert beri að stefna í tengslum við lagasmíð um afhjúpendur á Íslandi.

Dr. Thomas Hoeren veitti framsögumönnum þingsályktunartillögunnar ráðgjöf við vinnu hennar og David Leigh kom að því að afhjúpa eitt umfangsmesta spillingarmál síðari ára.

Dagskrá:

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: Ávarp

Ása Ólafsdóttir, dósent í Í og formaður stýrihópsins: Starf og hlutverk IMMI hópsins”.

Dr. Thomas Horen, deildarforseti lagadeildar Háskólans i Munster í Þýskalandi: “Whistleblowing – the conflict between the right to information and anonymity.”

David Leigh, ritsjtóri yfir rannsóknarblaðamennsku hjá breska dagblaðinu The Guardian, „Whistleblower in UK and how they have been helpful in processing the news and what specifcally can be done in the guestion of „high-risk information sources“.

Hreinn Loftsson, hæstaréttarlögmaður og aðaleigandi Birtings: “Tháningarfrelsi blaðamanna í ljósi nýlegra dóma”.

Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður með frummælendum en auk þeirra situr í pallborði Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður og einn flutningsmanna þingsályktunartillögunnar.

Fundar og umræðustjóri: Þóra Arnórsdóttir